Leikskólasérkennari / þroskaþjálfi
Jákvæður og áhugasamur þroskaþjálfi eða leikskólasérkennari óskast til starfa í leikskólanum Brákarborg, sem er sex deilda leikskóli.
Reynsla og þekking er mikilvæg. Góð íslenskukunnátta skilyrði.
Leikskólasérkennari / Þroskaþjálfi - Brákarborg
Við leggjum áherslu á sjálfstæði barna og vinnum með jákvæðan aga í gegnum LAUSNAHRINGINN. Unnið er eftir hugmyndafræði Caroline Pratt og John Dewey. Brákarborg er Hinseginvænn starfsstaður sem hefur hlotið Regnbogavottun Reykjavíkurborgar. Þess vegna er vakin athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega samfélag sem borgin er.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að veita barni með sérþarfir leiðsögn og stuðning í samstarfi við sérkennslustjóra og Lausnateymi ásamt deild barns.
- Að eiga samstarf við foreldra, fagaðila og aðra ráðgjafa.
- Að vinna að gerð einstaklingsnámskráa og fylgja þeim eftir.
- Að sinna þeim verkefnum er varða sérkennslu, og öðrum störfum innan leikskólans, sem yfirmaður felur honum.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun eða önnur sambærileg menntun
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með börnum
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Góð færni í samskiptum
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
- Góð íslenskukunnátta - hæfni B2
Fríðindi í starfi
- Sundkort
- Menningarkort
- Heilsuræktarstyrkur
- 36 stunda vinnuvika fyrir fullt starf
- Samgöngustyrkur
Nánari upplýsingar um starfið veitir:
Nánari upplýsingar um starfið veitir María Björnsdóttir leikskólastjóri og Georg Atli Hallsson, aðstoðarleikskólastjóri í síma 411-3120 og í tölvupósti brakarborg@reykjavik.is