Til baka á starfasíðu

Sjúkraliði í endurhæfingarteymi

Heimaþjónusta Reykjavíkur auglýsir eftir sjúkraliða í þverfaglegt teymi sem veitir endurhæfingu í heimahúsi. Vinnutíminn er á dagvinnutíma alla virka daga, teymið er staðsett í Norðurmiðstöð, Efstaleiti 1

Fullt starf Endurhæfingarteymi miðbyggð 101
Sækja um

Endurhæfingarteymi í Norðurmiðstöð leitar af öflugum sjúkraliða til starfa í fullt starf. Unnið er á dagvinnutíma alla virka daga.

Reykjavíkurborg veitir samþætta heimaþjónustu sem samanstendur af heimastuðningi og heimahjúkrun og nú einnig endurhæfingu í heimahúsi. Hugmyndafræði endurhæfingar í heimahúsi byggist á þverfaglegri endurhæfingu inn á heimili íbúans þar sem áhersla er lögð á hjálp til sjálfshjálpar. 

Þjónustan er tímabundin og ætluð þeim sem eru að kljást við færniskerðingu og þurfa heimaþjónustu.

Endurhæfingarteymið samanstendur af iðjuþjálfa, hjúkrunarfræðingi, sjúkraþjálfara/íþróttafræðingi, sjúkraliðum og félagsliðum. Teymið veitir persónumiðaða þjónustu þar sem endurhæfingaráætlun byggist á þörfum íbúans og hefur það markmið að styðja og styrkja færni, auka bjargráð og efla félagslega þátttöku í samfélaginu.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sjúkraliði ber ábyrgð á því að veita persónumiðaða aðstoð við athafnir daglegs lífs á heimili notandans, ráðgjöf, stuðning og framfylgir meðferðáætlun í samvinnu við aðrar fagstéttir teymisins.
  • Greinir og skráir mat á líkamlegu, andlegu og félagslegu ástandi notanda og þjónustuþörf.
  • Hefur yfirsýn með þörfum notanda með tilliti til mögulegra hjálpartækja og þjónustuúrræða.
  • Þróun og þátttaka í þverfaglegu starfi og faglegri uppbyggingu.
  • Önnur þau verkefni sem starfsmanni kunna að verða falin af yfirmanni.

Menntun og hæfniskröfur

  • Sjúkraliðamenntun, íslenskt starfsleyfi.
  • Íslenskukunnátta á bilinu B1-B2 (í samræmi við samevrópska tungumálaramma).
  • Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
  • Skipulagshæfni og faglegur metnaður.
  • Góð tölvufærni og heiðarleiki í mannlegum samskiptum.
  • Áhugi á þróun og uppbyggingu faglegs starfs og teymisvinnu.
  • Sjálfstæð vinnubrögð og frumkvæði í starfi.
  • Sérmenntun kostur.

Fríðindi í starfi

  • Sund- og menningarkort.
  • Samgöngustyrkur
  • Heilsustyrkur
  • Mötuneyti.
  • 36 stunda vinnuvika

Laun eru samkvæmt samningi Reykjavíkurborgar og Sjúkraliðafélags Íslands.

Nánari upplýsingar veitir Aldís Ösp teymisstjóri endurhæfingar í heimahúsi í Efstaleiti 1 í s. 620-1940 eða tölvupósti aldis.osp.gudrunardottir@reykjavik.is

Sækja um