Deildarstjóri
Deildarstjóri óskast í leikskólann Jörfa frá 1. mars 2025
Vorið 2025 stækkum við Jörfa og við erum að opna tvær glænýjar ungbarnadeildir. Leikskólinn Jörfi verður þá 7 deilda leikskóli. Leikskólanum er skipt upp í eldri deildir 3-5 ára- Jörfi við Hæðargarð 27a og ungbarnadeildir 1- 3 ára Litla Jörfi við Bústaðaveg 81.
Leikskólinn Jörfi er í innleiðingarferli á nýrri skólastefnu í anda Reggio Emilia. Ein af megináherslunum Reggio Emilia hugmyndafræði er á að virða sjónarhorn barna, hvetja þau til sköpunar og efla rannsóknargleði í gegnum leik og samskipti.
Við leitum að deildarstjóra og er mikilvægt að hann sé með opið hugarfar og hafi áhuga eða reynslu að því að vinna eftir hugmyndafræði Reggio Emilia og eftir Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna.
Aðbúnaður og staðsetning leikskólans er góð með ýmsum möguleikum til útivistar. Í göngufæri eru, Grundagerðisgarður, Úlfaskógur, Hákonarlundur, Elliðaárdalur, Fossvogsdalur og Laugardalur ásamt mörgum öðrum grænum svæðum og görðum.
Einkunnarorð skólans eru: Gleði - Sköpun - Virðing.
Við hvetjum alla áhugasama til að koma í heimsókn og kíkja á heimasíðunaog Instagram síðu Jörfa.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Að vinna að uppeldi og menntun leikskólabarna samkvæmt starfslýsingu deildarstjóra, þ.m.t.
- Að bera ábyrgð á uppeldis- og menntunarstarfinu sem fram fer á deildinni
- Stjórnun, skipulagningu og mat á starfi deildarinnar
- Að bera ábyrgð á að unnið sé eftir skólanámskrá
- Að bera ábyrgð á foreldrasamvinnu
Hæfniskröfur
- Leikskólakennaramenntun og leyfisbréf kennara
- Reynsla af uppeldis- og kennslustörfum með ungum börnum æskileg
- Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður. Lipurð og sveigjanleiki í samskiptum.
- Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta B2 skv. samevrópska tungumálarammanum
Fríðindi í starfi
- Menningarkort
- Bókasafnskort
- Sundkort
- 36 stunda vinnuvika fyrir 100% starf
- Heilsuræktarstyrkur
- Samgöngusamningur þegar við á
Laun eru samkvæmt samningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ v/ Félags leikskólakennara.
Starfshlutfall er 100%
Nánari upplýsingar veita Vessela Dukova og Ágústa Hjaltadóttir.
jorfi@reykjavik.is