Frístundaleiðbeinandi/ráðgjafi - Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla
Frístundaheimilið Úlfabyggð í Dalskóla óskar eftir að ráða í störf frístundaleiðbeinenda/ráðgjafa í 20-50% starfshlutföll eftir hádegið frá kl. 13:15-17:00.
Dalskóli er samrekinn grunnskóli, leikskóli og frístundaheimili. Í Úlfabyggð er boðið upp á fjölbreytt frístundastarf fyrir 6-9 ára börn að skóladegi loknum. Þar starfa frístundaleiðbeinendur og frístundaráðgjafar sem eru lykillinn að því að veita íbúum fyrsta flokks þjónustu.
Vakin er athygli á stefnu Reykjavíkurborgar um jafnan hlut kynja í störfum og að vinnustaðir endurspegli það margbreytilega.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Skipulagning á faglegu frístundastarfi fyrir 6-9 ára börn.
- Leiðbeina börnum í leik og starfi.
- Samráð og samvinna við börn og starfsfólk.
- Samskipti og samstarf við starfsfólk Dalskóla og aðra sem koma að starfi frístundaheimilisins.
Hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi.
- Áhugi á að vinna með börnum.
- Frumkvæði og sjálfstæði.
- Færni í samskiptum.
- Íslenskukunnátta á stigi B2 samkvæmt evrópska tungumálarammanum.
Í boði eru hlutastörf 20-50%, eftir hádegi frá kl. 13:15-17:00.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst.
Hreint sakavottorð í samræmi við lög sem og reglur Reykjavíkurborgar.
Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Erna Kjartansdóttir.
Netfang: ragnheidur.erna.kjartansdottir@rvkskolar.is
Sími: 6648376.