Greiðslur til stuðningsfjölskyldna

1. grein

Stuðningsfjölskylda skv. barnaverndarlögum nr. 80/2002 Upphæð 2024
Greiðslur á sólarhring 30.885
Álagsgjald 40.115
Sérstakt álagsgjald 57.070

 

2. grein

Stuðningsfjölskylda skv. lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir nr. 38/2018  Upphæð 2024
Umönnunarflokkur 1 – greiðsla fyrir sólarhring 55.245
Umönnunarflokkur 2 – greiðsla fyrir sólarhring 42.750
Umönnunarflokkur 3 – greiðsla fyrir sólarhring 32.915

 

3. grein

Gjaldskrá þessi er sett með stoð í 15. gr. laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir, nr. 38/2018, og 85. gr. barnaverndarlaga, nr. 80/2002.

Gjaldskrá þessi öðlast gildi þann 1. janúar 2024 og fellur þá jafnframt úr gildi eldri gjaldskrá sama efnis.