Spurt og svarað um sérstakan húsnæðisstuðning

Hér finnur þú algengar spurningar og svör um sérstakan húsnæðisstuðning. 

Spurt og svarað

Hver getur sótt um sérstakan húsnæðisstuðning?

Sá sem er skráður fyrir leigusamningi að íbúðarhúsnæði getur sótt um sérstakan húsnæðisstuðning. Aðrir íbúar teljast heimilisfólk í umsókn. Séu fleiri en einn aðili að leigusamningi um íbúðarhúsnæði er gert ráð fyrir að heimilisfólk komi sér saman um hvert þeirra skuli vera umsækjandi um sérstakan húsnæðisstuðning.  

Athugaðu að fyrst þarf að sækja um húsnæðisbætur hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. 

Á ég rétt á húsnæðisbótum? 

Til að eiga rétt á húsnæðisbótum þarf að uppfylla nokkur skilyrði. Kynntu þér málið á vef Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar

Get ég sótt um sérstakan húsnæðisstuðning þó að ég sé ekki með leigusamning? 

Heimilt er að samþykkja umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning þó svo að ekki liggi fyrir leigusamningur þegar liggur fyrir að umsækjandi er í húsnæðisleit. Gildistími umsóknar er þrír mánuðir frá samþykkisdegi en greiðsla sérstaks húsnæðisstuðnings hefst ekki fyrr en réttur til húsnæðisbóta hefur verið staðreyndur. 

Skiptir máli hvað ég er með miklar tekjur? 

Já, það skiptir máli.

Ef um er að ræða einstakling skerðast greiðslur ekki ef tekjur eru undir 5.388.983 kr. á ári eða 449.082 kr. á mánuði. Þegar tekjur eru orðnar hærri en 6.736.288 kr. á ári eða 561.352 kr. á mánuði fellur réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings niður. 

Ef um er að ræða tvo íbúa skerðast greiðslur ekki ef samanlagðar tekjur eru undir 7.127.364 kr. á ári eða 593.947 kr. á mánuði. Þegar tekjur eru orðnar hærri en 8.909.204 kr. á ári eða 742.434 kr. á mánuði fellur réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings niður. 

Ef um er að ræða þrjá íbúa skerðast greiðslur ekki ef samanlagðar tekjur eru undir 8.344.232 kr. á ári eða 695.353 kr. á mánuði. Þegar tekjur eru orðnar hærri en 10.430.289 kr. á ári eða 869.191 kr. á mánuði fellur réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings niður. 

Ef um er að ræða fjóra eða fleiri íbúa skerðast greiðslur ekki ef samanlagðar tekjur eru undir 9.039.585 kr. á ári eða 753.299 kr. á mánuði. Þegar tekjur eru orðnar hærri en 11.299.480 kr. á ári eða 941.623 kr. á mánuði fellur réttur til sérstaks húsnæðisstuðnings niður. 

Skiptir máli hvað ég á miklar eignir? 

Já. Samanlagðar eignir umsækjanda og annarra heimilismanna, 18 ára og eldri, á síðastliðnu ári skulu ekki vera hærri en 7.158.000 kr. Um er að ræða nettó eign, þ.e. allar eignir að frádregnum skuldum. 

Eignir eru t.d. innistæður á bankareikningum, bílar, hjólhýsi, mótorhjól, fasteignir og hlutabréfaeign, samkvæmt skattskýrslu. 

Skuldir eru allar skuldir í árslok samkvæmt skattskýrslu. 

Skiptir máli hvað ég borga háa leigu? 

Já, fólk sem greiðir 50.000 kr. og minna í leigu á mánuði getur ekki fengið sérstakan húsnæðisstuðning. 

Skiptir máli hvernig húsnæði ég leigi? 

Já. Íbúðarhúsnæðið þarf að uppfylla lágmarksskilyrði, þ.e. eitt svefnherbergi ásamt séreldhúsi eða séreldurnaraðstöðu og sérsnyrtingu og baðaðstöðu. Ekki er hægt að sækja um húsnæðisbætur ef um er að ræða atvinnuhúsnæði skv. fasteignaskrá. 

Námsfólk sem tekur á leigu herbergi eða íbúð á heimavist eða námsgörðum sem tengjast viðurkenndum menntastofnunum innan hins almenna menntakerfis hafa undanþágu frá þessari reglu og geta fengið húsnæðisbætur fyrir leigu á herbergi. 

Það sama á við um sambýli fatlaðs fólks í húsnæðisúrræðum og sambýli einstaklinga á áfangaheimilum.

Hvað fæ ég greidda háa fjárhæð? 

Það fer eftir aðstæðum, tekjum og eignum alls heimilisfólks eldra en 18 ára. 

Sérstakur húsnæðisstuðningur er reiknaður sem ákveðið hlutfall af húsnæðisbótum þannig að fyrir hverjar 1.000 kr. fær leigjandi greiddar 1.000 kr. í sérstakan húsnæðisstuðning, að teknu tilliti til lækkunar samkvæmt öðrum skilyrðum reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðnings og að teknu tilliti til áhrifa tekna. 

Húsnæðisbætur og sérstakur húsnæðisstuðningur geta aldrei numið hærri fjárhæð en samtals 100.000 kr. Upphæð sérstaks húsnæðisstuðnings tekur mið af tekjum alls heimilisfólks eldra en 18 ára. 

Hvenær fellur sérstakur húsnæðisstuðningur niður? 

Greiðsla sérstaks húsnæðisstuðningur fellur niður frá og með næstu mánaðamótum eftir að skilyrði reglna Reykjavíkurborgar um sérstakan húsnæðisstuðning eru ekki lengur uppfyllt eða þegar leigusamningur fellur úr gildi.

Árlega fer fram lokauppgjör á húsnæðisbótum hjá framkvæmdaraðila húsnæðisbóta vegna ársins á undan. Í kjölfar þess er sérstakur húsnæðisstuðningur endurreiknaður m.t.t. breytinga sem fram koma í lokauppgjöri húsnæðisbóta. Umsókn um sérstakan húsnæðisstuðning fellur sjálfkrafa úr gildi ef í ljós kemur eftir endurreikning að umsækjandi er með tekjur hærri en heimilt er samkvæmt reglum allt árið á undan og alla mánuði fram að framkvæmd endurútreiknings.

Hvenær fæ ég sérstakan húsnæðisstuðning greiddan? 

Sérstakur húsnæðisstuðningur greiðist umsækjanda í fyrstu viku hvers almanaksmánaðar og er greiddur eftir á fyrir leigutíma undanfarandi almanaksmánaðar eða hluta úr almanaksmánuði, hefjist leigutími síðar en fyrsta dag almanaksmánaðar eða ljúki fyrir síðasta dag almanaksmánaðar. Samningur sem kann að vera í gildi milli umsækjanda og leigusala eða þriðja aðila um fyrirframgreiðslu húsnæðiskostnaðar breytir engu hér um. 

Hvernig fæ ég sérstakan húsnæðisstuðning greiddan? 

Sérstakur húsnæðisstuðningur er greiddur inn á þann reikning sem umsækjandi tilgreinir í umsókn. Heimilt er að greiða sérstakan húsnæðisstuðning til leigusala samkvæmt skriflegri beiðni umsækjanda.

Þarf ég að borga skatt af sérstökum húsnæðisstuðningi? 

Nei. Sérstakur húsnæðisstuðningur er undanþeginn skatti. 

Er sérstakur húsnæðisstuðningur greiddur afturvirkt? 

Sérstakur húsnæðisstuðningur er ekki greiddur lengra aftur en frá þeim almanaksmánuði sem umsóknin er móttekin. Óheimilt er að greiða sérstakan húsnæðisstuðning lengra aftur í tímann, þrátt fyrir að leiga hafi hafist fyrr og leigusamningur liggur fyrir því til staðfestingar. 

Er sérstakur húsnæðisstuðningur greiddur til barna? 

Veita skal sérstakan húsnæðisstuðning til foreldra eða forsjáraðila 15–17 ára barna sem leigja herbergi á heimavist eða námsgörðum hér á landi vegna náms fjarri lögheimili. Sérstakur húsnæðisstuðningur skal vera óháður tekjum og eignum foreldra eða forsjáraðila og nemur 60% af leigufjárhæð. Með umsókn um slíkan stuðning skal leggja fram húsaleigusamning og staðfestingu á námi barns. 

Hvað gerist ef umsókn minni er synjað?

Ef umsókn er synjað og þú telur sérstakar málefnalegar ástæður liggja fyrir því að veita skuli þér undanþágu frá reglum getur þú sent inn beiðni um áfrýjun til áfrýjunarnefndar velferðarráðs.