Samstarfshópur um málefni miðborgar

Markmið með skipan samstarfshóps um málefni miðborgar eru að auka skilvirkni, skapa yfirsýn og efla upplýsingamiðlum um málefni miðborgar, sem og að efla samvinnu og samráð mismunandi hagaðila og starfseininga innan borgarinnar. Borgarráð samþykkti skipan hópsins í september 2020 og hefur skipan hans í tvígang verið endurnýjuð, síðast í mai 2023 og gildir sú skipan til ársloka 2025.

Hlutverk og helstu verkefni samstarfshóps um málefni miðborgar

  1. Að efla samráð og samtal milli ólíkra aðila sem koma að málefnum miðborgar bæði innan stjórnkerfis og utan með stefnu í málefnum miðborgar til hliðsjónar.
  2. Að auka reglubundið samstarf og samvinnu milli Reykjavíkurborgar og hagaðila um miðborgina.
  3. Að vinna saman að aðlaðandi, vistvænni, skemmtilegri og fjölbreyttri miðborg fyrir alla með það að markmiði að fjölga gestum í miðborginni.
  4. Að safna og hafa yfirsýn yfir viðeigandi tölfræðigögn og lykilupplýsingar um málefni miðborgarinnar.
  5. Að miðla upplýsingum sín á milli um þjónustu, starfsemi, framkvæmdir og viðburði og annað það sem varðar miðborg Reykjavíkur.
  6. Að fylgja eftir stefnu í málefnum miðborgar með gerð starfsáætlunar til árs.
  7. Að veita umsagnir um styrkumsóknir í Miðborgarsjóð.
  8. Að gera tillögur að fyrirkomulagi samstarfs um málefni miðborgar til næstu ára í samstarfi við hagsmunaaðila

Fulltrúar Reykjavíkurborgar

Borgarritari (formaður), fulltrúar skrifstofu reksturs og umhirðu borgarlandsins, fulltrúi skilmálaeftirlits byggingafulltrúa, fulltrúi skrifstofu framkvæmda og viðhalds, fulltrúi samgöngustjóra og borgarhönnunar, fulltrúar samskipta-, markaðs og viðburðateymis, fulltrúi menningar- og íþróttasviðs, , fulltrúar atvinnu- og borgarþróunarteymis, fulltrúi þjónustumiðstöðvar Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, fulltrúi þjónustu- og nýsköpunarsviðs, fulltrúi mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu, fulltrúi heilbrigðiseftirlitsins.

Aðrir fulltrúar:

Aðrir fulltrúar: Fulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, fulltrúi slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, fulltrúar íbúasamtaka Vesturbæjar, Grjótaþorps, Miðborgar og Hlíða, fulltrúar frá Markaðsfélagi Miðborgarinnar, Áfangastaðastofu höfuðborgarsvæðisins, fulltrúi samtaka verslunar og þjónustu (SVÞ), félag fasteignafélaga SVÞ, fulltrúi félags atvinnurekenda (FA), fulltrúi Hafnartorgs, fulltrúi Faxaflóahafna, fulltrúi samtaka aðila í ferðaþjónustu (SAF), fulltrúi stjórnarráðs Íslands.
Aðrir fulltrúar Reykjavíkurborgar og hagaðila verði boðaðir á fundi samstarfshópsins í samræmi við dagskrá.

Formaður

 Formaður samstarfshópsins er Þorsteinn Gunnarsson, borgarritari.

Starfsfólk

Starfsmenn eru Hulda Hallgrímsdóttir og Jón Halldór Jónasson, verkefnisstjórar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, en þau starfa innan atvinnu- og borgarþróunarteymis.

Nokkrir vinnuhópar starfa eða hafa starfað í tengslum við samstarfshópinn:

  • Vinnuhópur um tölfræði. Á vettvangi þessa vinnuhóps hefur einkum verið rýnt í niðurstöður talninga sem Rannsóknarsetur verslunarinnar hefur annast fyrir Reykjavíkurborg.
  • Vinnuhópur um vörudreifingu hefur átt samtöl um aðstöðu og lausnir vegna vörulosunar í miðborginni. Hópurinn hefur farið í vettvangsferðir og rætt þar mögulegar lausnir til hagsbóta fyrir alla aðila.
     
  • Vinnuhópur um nýtt félag miðborgarinnar hefur lokið störfum. Hann hafði til skoðunar möguleika að að stofna eitt sameiginlegt félag fyrir hagaðila í miðborginni. Vinnuhópurinn hefur staðið fyrir stærri vinnustofum og fengið ráðgjafa til liðsinnis. Fulltrúar hagaðila eru með framhald verkefnisins til skoðunar.
  • Vinnuhópur um greiningu á atvinnuhúsnæði í miðborginni vann nokkuð þétt á árinu 2021 og fékk ráðgjafa til liðs við sig

Gögn frá fundum samstarfshóps um málefni miðborgar

Kynningar og önnur gögn sem lögð eru fram á fundum samstarfshóps.