Hvernig fæ ég útgefið byggingarleyfi?
Afgreiðslutími
Endanlegur tími fyrir samþykkt áforma og útgáfu byggingarleyfis fer eftir því hvort öllum viðeigandi gögnum var skilað inn og hvort þau uppfylla þær kröfur sem eru gerðar, stærð verkefnis, hvort fara þurfi í grenndarkynningu og hvenær tilskilin gjöld eru greidd.
Tafir
Algeng ástæða lengri afgreiðslutíma á samþykkt áforma og útgáfu byggingarleyfis er að gögn sem berast eru ekki fullnægjandi. Þar má helst nefna:
- ekki fylgja öll nauðsynleg gögn umsókninni (t.d. samþykki meðeiganda, umsögn burðarvirkishönnuða).
- teikningar eru ófullgerðar, ófullnægjandi eða samræmast ekki byggingarreglugerð.
- teikningar eru ekki í samræmi við samþykkt skipulag.
- gjöld eru ekki greidd.
Nauðsynleg gögn
Til að fá byggingarleyfi útgefið svo framkvæmdir geti hafist þarf að skila inn eftirfarandi gögnum:
-
Beiðni um skráningu byggingarstjóra þarf að skila inn útfylltri og undirritaðri af lóðarhafa/eiganda til þjónustuvers.
-
Undirritaðri yfirlýsingu byggingarstjóra um ábyrgð sína á framkvæmdinni (eyðublað fyrir staðfestingu á leyfi og ábyrgð byggingarstjóra fæst afhent eftir beiðni um skráningu byggingastjóra í þjónustuveri).
-
Undirritaðri ábyrgðaryfirlýsingu iðnmeistara sem bera ábyrgð á einstöku verkþáttum (eyðublað fæst afhent eftir skráningu byggingastjóra í þjónustuveri).
-
Starfsábyrgðartryggingu byggingarstjóra frá tryggingarfélagi (staðfesting tryggingar er send frá tryggingarfélagi á netfang byggingarfulltrúa: byggingarfulltrui@reykjavik.is).
-
Yfirliti hönnunarstjóra um innra eftirlit við framkvæmd hönnunar um ábyrgðarsvið einstakra hönnuða og áritun hans til staðfestingar á því að um tæmandi yfirlit sé að ræða.
-
Eignaskiptayfirlýsingu (ef við á).
-
Greiða byggingarleyfisgjöld og önnur tilskilin gjöld.
Athugið að það er hlutverk hönnunarstjóra að tryggja að öll gögn berist embætti byggingarfulltrúa sem og að óska eftir áframhaldandi afgreiðslu málsins þegar gögnin og greiðslan hafa borist. Þá getur formlegt byggingarleyfi verið gefið út og einungis þá getur framkvæmdin hafist.