Menning og listir

Að skapa; er að finna upp, gera tilraunir, vaxa, brjóta reglur, gera mistök og skemmta sér. Þessi skilgreining á vel við það menningarstarf sem fram fer í Hinu Húsinu. Starf sem endurspeglar menningu ungs fólks hvort heldur er á sviði tónlistar, leiklistar, myndlistar, dans og annarra skapandi verkefna.

Músíktilraunir

Músíktilraunirnar hafa allt frá árinu 1982 verið einn aðalvettvangurinn fyrir ungar íslenskar hljómsveitir og tónlistarfólk á aldrinum 13-25 ára til að koma tónlist sinni á framfæri.  

 

Músíktilraunir er tónlistarhátíð sem stendur yfir í eina viku í lok mars og byrjun apríl ár hvert.

Unglist

Unglist, listahátíð ungs fólks, hefur verið árviss viðburður á haustdögum í Reykjavík frá árinu 1992.

 

Hátíðin stendur yfir í rúma viku í hvert sinn með fjölda þátttakenda og njótenda. Það er breytilegt frá ári til árs hvar viðburðirnir á hátíðinni fara fram.  

Götuleikhúsið

Götuleikhúsið er orðið vel þekkt á meðal almennings enda hefur leikhúsið verið starfrækt yfir sumartímann frá árinu 1994. Síðan þá hefur leikhúsið fóstrað stóran hóp ungs fólks sem mörg hver starfa í dag sem þekktir listamenn á ýmsum sviðum.

Listhópar

Ungu fólki gefst kostur á að sækja um og koma með hugmyndir að skapandi verkefnum og valdir hópar eða einstaklingar fá síðan tækifæri til að vinna að hugmyndum sínum í átta vikur yfir sumartímann.

Myndlist og tónlist

Í Hinu Húsinu er gallerí þar sem ungt listafólk getur sett upp sýningar af ýmsu tagi. Þar er einnig fullbúið hljóðver með öflugri tölvu, hljóðvinnsluforritum, tækjabúnaði og hljóðfærum sem og tölva til myndvinnslu.

Í Hinu Húsinu er góð aðstaða og tækjabúnaður fyrir ungt tónlistarfólk til að halda tónleika og koma tónlist sinni á framfæri.