Hálsaskógur

Leikskóli 

Hálsasel 27-29
109 Reykjavík

Um leikskólann

Opnunartími Hálsaskógar er frá 07:30 til 16:30

Leikskólinn Hálsaskógur tók til starfa í júlí 2011 er leikskólarnir Hálsaborg og Hálsakot sameinuðust. Leikskólinn er með tvær starfsstöðvar og þar starfa um 40 manns. Í Borg eru börn á aldrinum 1-3 ára á þremur deildum, Furulundi, Lerkilundi og Reynilundi. Í Koti eru börn á aldrinum 3-6 ára á þremur deildum, Birkilundi, Grenilundi og Víðilundi.

Leikskólastjóri er Ásgerður Guðnadóttir

 

Framkvæmdir

Framkvæmdir standa yfir á leikskólanum Hálsaskógi og er því hluti skólans staðsettur tímabundið í Ævintýraborg Vogabyggð. Áætlað að framkvæmdum ljúki í desember 2024.

Um leikskólann

Viltu vita meira um Hálsaskóg? Í þessu örstutta myndbandi er stiklað á stóru um starfsemi leikskólans. Unnið af Erlu Stefánsdóttur og Antoníu Lárusdóttur fyrir skóla- og frístundasvið. 

Hugmyndafræði

Gildi Hálsaskógar eru leikur, virðing og vinátta

 

Hálsaskógur notast við 'Uppeldi til ábyrgðar' og jákvæða sálfræði sem byggist á að styrkja sjálfsmynd, efla seiglu og hafa þannig betra þol fyrir mótlæti. Í Hálsaskógi er einnig rík hefð fyrir umhverfismennt, jafnt utandyra sem innan. Útinám er stór þáttur í starfinu og hefur leikskólinn grenndarsvæði til umráða í næsta nágrenni sínu. Hálsaskógur hefur nú fengið sinn áttunda Grænfána en Grænfánastarfið hefur verið viðvarandi síðan 2004.

Leikskólastarf

Starfsáætlun

Hvað er framundan í Hálsaskógi? Í starfsáætlun finnur þú meðal annars innra og ytra mat leikskólans fyrir síðasta ár, umbótaáætlun, leikskóladagatal og ótalmargt fleira.

Skólanámskrá

Viltu vita meira um hugmyndafræði og daglegt starf í Hálsaskógi? Í skólanámskrá finnur þú ítarlegar upplýsingar um hugmyndafræðilegar áherslur og stefnu skólans í leik, námi og starfi.

Leikskóladagatal

Hvenær eru starfsdagar í leikskólanum Hálsaskógi? Í skóladagatali finnur þú upplýsingar um frídaga í leikskólanum og ýmislegt fleira. 

Foreldrasamstarf

Við erum öll í þessu saman, enda er oft sagt að það þurfi heilt þorp til að ala upp barn. Í leikskólum borgarinnar er markvisst unnið að því að auka samráð við foreldra og styrkja aðkomu þeirra að leikskólastarfi. Foreldrafélag og foreldraráð eru starfrækt í öllum leikskólum Reykjavíkurborgar. 

Miðstöð Hálsaskógar

Leikskólinn Hálsaskógur tilheyrir Suðurmiðstöð. Suðurmiðstöð sinnir fjölbreyttri þjónustu við íbúa í Breiðholti og er alhliða upplýsingamiðlun um þjónustu borgarinnar. Þar er veitt velferðarþjónusta, skólaþjónusta við leik- og grunnskóla, daggæslu- og frístundaráðgjöf og ýmis önnur þjónusta. 

 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Tengiliður Hálsaskógar er: Soffía Adolfsdóttir

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​