Halastjarnan

Frístundaheimili

Háteigsskóli við Háteigsveg
105 Reykjavík

""

Um Halastjörnuna

Frístundaheimilið Halastjarnan hefur umsjón með skipulagðri tómstundadagskrá fyrir börn í 1.-4. bekk í Háteigsskóla. Halastjarnan er rekin af frístundamiðstöðinni Tjörninni. 

Forstöðukona er Ulrike Schubert

Aðstoðarforstöðukona er Steinunn Reynisdóttir

Lengd viðvera

Á starfsdögum skóla, foreldraviðtalsdögum og í jóla- og páskaleyfi er opið allan daginn í Halastjörnunni frá klukkan 08:00 til 17:00 að undangenginni skráningu. Greitt er sérstaklega fyrir lengda viðveru á þessum dögum. Halastjarnan er lokuð í vetrarleyfi skólans.

Dagleg starfsemi

Geimstöðin hýsir 1. og 2. bekk og spilar það rými stórt hlutverk hjá okkur. Hjartarýmið er fyrir 3. og 4. bekk en það fékk það nýtt nafn í vor 2023 og heitir núna Stjörnuljós. Á Visindaviku Tjarnarinnar í október ætlum við að halda okkur eigin Geimdag og læra meira um geiminn. Halastjarnan er einnig með öflugan 4.bekkjar klúbb og hefur haldið utan um tilraunaverkefnið '104 - opið hús fyrir börn í 4. bekk'. Halastjarnan stefnir á að verða Réttindafrístund ásamt Háteigskóla og félagsmiðstöð 105 í haust 2024.

Ýmis gögn og tenglar

Gjaldskrá

Hér getur þú nálgast gjaldskrá fyrir vetrar- og sumarstarf frístundaheimila ásamt upplýsingum um systkina afslátt og ýmislegt fleira. 

Farsæld barna

Ný lög um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna  hafa tekið gildi. Markmiðið er að tryggja að börn og forsjáraðilar fái rétta aðstoð, á réttum tíma, frá réttum aðilum. Fjölskyldum og börnum sem þurfa snemmtækan stuðning er tryggður aðgangur að tengilið farsældar í nærumhverfi barnsins, svo sem í leikskóla eða grunnskóla. Tengiliður farsældar veitir upplýsingar og leiðbeiningar um þjónustu og stuðlar að því að börn og forsjáraðilar hafi aðgang að þjónustu án hindrana. Til að óska eftir samþættri þjónustu geta börn, ungmenni og forsjáraðilar haft samband við tengilið farsældar.

Upplýsingar um tengiliði farsældar fyrir börn í frístundaheimilinu Halastjörnunni má finna á heimasíðu Háteigsskóla

Nánari upplýsingar um lögin og þjónustuna eru á heimasíðunni farsaeldbarna.is​