Dagskrá

Dagskrá: nóvember-desember

Laugardaginn 25. nóvember 2023 kl. 10-13

Málþing í Grasagarði Reykjavíkur: Borgarnáttúra – Urban biodiversity Iceland

Málþing um líffjölbreytileika í borgarumhverfinu þar sem sérfræðingar fjalla um ýmsar hliðar náttúrunnar í þéttbýli.

Dagskrá:

Kl. 10 Mariana Tamayo, Mervi Luoma og Rebecca Thompson: Biodiversity in the City – engaging the public

Kl. 10:30 Aron Alexander Þorvarðarson: Vöktun fuglalífs í borgarlandinu

Kl. 11 Magnus Göransson: Can local biodiversity contribute to global food security?

Kl. 11:30 Kaffihlé

Kl. 12 Helga Ögmundardóttir: Moltan í borginni – sköpun, núvitund, samlífi og umhverfisvernd

Kl. 12:30 Gunndís Finnbogadóttir: Náttúra, myndlist og listkennsla í borgarlandslaginu

Málþingið fer fram í garðskála Grasagarðs Reykjavíkur.

Þátttaka er ókeypis og öll velkomin!

Skráning á málþingið fer fram hér: https://forms.gle/uKmLXG6GC9KJBhP58

Málþingið er samstarfsverkefni Borgarnáttúru -Urban Biodiversity Iceland, Grasagarðs Reykjavíkur og Landverndar og er styrkt af Safnaráði.

---

Laugardagur 2. desember kl. 11

Vetrarfuglaskoðun

Fuglalífið verður skoðað á göngu um Grasagarðinn og farið yfir fuglafóðrun að vetri. Þátttakendur eru hvattir til að að mæta með kíki með sér. Fuglaskoðunin er samstarfsverkefni Grasagarðsins og Fuglaverndar.

Þátttaka ókeypis og öll velkomin!

 

Dagskrá 2023

Þú getur skoðað hvaða viðburðir eru í Grasagarðinum árið 2023 í þessu skjali:

Sýningar

Loftslagslabbið

Vissir þú að elsta plantan í Grasagarðinum hefur bundið kolefni sem nemur kolefnisbruna meðalfólksbíls í 3 mánuði og 24 daga?

Loftslagslabbið er sýning/gönguferð um Grasagarðinn þar sem fjallað er um loftslagsmál út frá safngripum garðsins (plöntunum) og búsvæðum og hlutverki þeirra í að minnka loftslagsvána.

Sýningin er styrkt af Loftslagssjóði og stendur til 30. september 2023.

Landkönnuðurinn

Fjölskyldugönguferðin Landkönnuðinn hér í Grasagarðinum, er í samstarfi við sænska sendiráðið á Íslandi. Við fetum í fótspor grasafræðingsins Daníels Solander sem fæddist í Svíþjóð árið 1733. Daníel elskaði plöntur og lærði um þær hjá frægasta grasafræðingi allra tíma, Carli Linnaeusi.

Daníel fannst svo skemmtilegt að skoða plöntur að hann fór í langt ferðalag á seglskipi í kringum hnöttinn, frá Evrópu til Suður-Ameríku, Eyjaálfu og Afríku. Daníel hefur lent í allskonar ævintýrum og hann fór einnig í ferð til Íslands. Það eru 250 ár síðan að Daníel kom hingað og safnaði allskonar íslenskum plöntum.

Nú getið þið prófað að vera landkönnuður eins og Daníel. Kort af gönguleiðinni má finna við inngang Café Flóru. Fylgdu kortinu og skoðaðu skiltin á hverjum stað. Landkönnuðurinn verður til 30. september 2023.

Farandsýning um villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna

Sumrin 2022 og 2023 mun farandsýning um villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna fara um landið með styrk frá Safnaráði Íslands. Sýningin er afrakstur samstarfs við Norræna genabankann (NordGen) og aðrar norrænar stofnanir. Sýningin er á bæði íslensku og ensku og mun vera í Grasagarðinum til 6. júní 2022. Síðan fer sýningin í Glaumbæ, svo í Lystigarðinn á Akureyri og að lokum í Ásbyrgi.

Villtar erfðalindir ræktaðra nytjaplantna eru tegundir plantna sem eru formæður nytjaplantna eða skyldar tegundir. Ólíkt nytjaplöntunum þá þurfa þessar villtu tegundir að lifa af við ólíkar aðstæður án aðkomu og viðhalds mannanna; þær vaxa því villtar í náttúrunni. Með áframhaldandi loftslagsbreytingum breytast skilyrði landbúnaðar. Til að mæta þessum breytingum mun verða þörf á nýjum eiginleikum hjá ræktuðum nytjaplöntum og þá þarf að vera hægt að leita í erfðafjölbreytni villtra plantna. Kynbótafræðingar dagsins í dag og framtíðarinnar geta leitað til þessara villtu stofna í leit að eiginleikum sem munu nýtast til að rækta fram ný yrki nytjaplantna.

Á Íslandi er fjölbreytileiki fóðurgrasa og berjategunda einkar mikill og má hér finna ættingja hveitis ásamt vallarfoxgrasi, bláberjum, jarðarberjum og kúmeni.

Langar hópinn þinn að fá leiðsögn um Grasagarðinn?

Tekið er á móti skóla-, vinnustaða- og félagahópum allan ársins hring eftir samkomulagi.

 

Bókanir og nánari upplýsingar má fá í síma 411-8650 virka daga kl. 9-15 eða með því að senda tölvupóst.

 

Leikskólar og grunnskólar geta bókað eftirfarandi fræðslubakpoka til notkunar á staðnum:

 

  • Plöntubakpoka
  • Fuglaskoðunarbakpoka
  • Lífveruleitarbakpoka
  • Smádýrabakpoka (15. maí - 15. september)

""

Grasagarðurinn er lifandi safn undir berum himni

Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 og er rekinn af Reykjavíkurborg. Hlutverk garðsins er að varðveita og skrá plöntur til fræðslu, rannsókna og yndisauka. 

 

Grasagarðurinn stendur fyrir fjölbreyttri fræðslu fyrir almenning og skólahópa. Markmið fræðslunnar er að nýta hin margvíslegu plöntusöfn til fræðslu um umhverfið, garðyrkju, grasafræði, dýralíf, garðmenningu og grasnytjar sem og til eflingar útiveru og lýðheilsu.

Hópur fólks að skoða blóm í Grasagarðinum

Kaffihúsið Flóran

Flóran Café/Bístró býður upp á ljúffengar veitingar með áherslu á hráefni úr eigin ræktun. Kaffihúsið sem er í garðskála Grasagarðsins er opið yfir sumartímann en lokað á veturna. 

Myndir úr Grasagarðinum