Húsnæðisáætlun

Lýsing á aðgerð og markmið

Aðgerð Græna plansins

Húsnæðisáætlun skilgreinir helstu byggingarsvæði í Reykjavík, lóðaúthlutun, fjárframlög til húsnæðismála, samvinnu við húsnæðisfélög sem byggja án hagnaðarsjónarmiða, kaupáform Félagsbústaða og uppbyggingu borgarinnar á félagslegum húsnæðisúrræðum. Í úthlutunaráætlun íbúðarhúsalóða árið 2022 er áætlað að úthluta lóðum undir 1.028 íbúðir; lóðir fyrir 400 íbúðir fyrir verkefni borgarinnar um hagkvæmt húsnæði - ungt fólk og fyrstu kaupendur, húsnæðisfélög lóðir fyrir 260 íbúðir og lóðir undir 367 íbúðir verða seldar í útboði. Húsnæðisáætlun er uppfærð árlega.

 

Framkvæmdatími

Áætluð verklok eru á seinni helmingi ársins 2023

Staða: Í vinnslu

Stöðulýsing 1. júlí 2023

Aðgerð lokið. Unnið var að Húsnæðisáætlun 2024-2033 og hún samþykkt í borgarráði 21. desember 2023. Vinna er hafin við stafræna útgáfu húsnæðisáætlunar 2024 með Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Auk þess hófst vinna við ársfjórðungsuppgjör húsnæðisáætlunar fyrir 2. og 3. ársfjórðung en vegna skorts á gögnum frá byggingarfulltrúa sem rekja má til tæknilegra örðugleika með innleiðingar Hlöðunnar, nýs upplýsingastjórnunarkerfis borgarinnar, tókst ekki að gefa þau út. Árlegt húsnæðisblað var gefið út í nóvember 2023 og var árlegur húsnæðisfundur borgarstjóra haldinn 17. nóvember.

Samstali borgarinnar við Húsnæðis- og mannvirkjastofnun var haldið áfram m.a. varðandi greiningar, deilingu og samræmingu gagna með það að markmiði að auka gæði og aðgengi að upplýsingum, s.s. í kortasjá húsnæðisuppbyggingar.

Eldri stöðulýsingar

Í töflunni hér fyrir neðan má sjá eldri stöðulýsingar sem veita upplýsingar um framvindu aðgerðarinnar frá upphafi (ef þú ert í síma er betra að snúa símanum á hlið).
  Tímasetning Lýsing framvindu
  Júlí 2023 Verið er vinna að endurskoðun húsnæðisáætlunar ársins og verður hún lögð fram í nóvember 2023.
  Janúar 2023   Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 4.229 á árinu 2022 og voru þeir 139.928 þann 1. janúar 2023. Íbúum fjölgaði um 1.295 á fjórða ársfjórðungi, 1.551 á þriðja ársfjórðungi, 1.113 á öðrum og 270 á þeim fyrsta.

Á árinu lauk byggingu 1.034 íbúða og voru 408 þeirra, eða rúm 39%, hagkvæmt húsnæði á viðráðanlegu verði eða félagslegt. Skv. byggingarfulltrúa Reykjavíkur voru 1.062 íbúðir skráðar fullgerðar á árinu en til samanburðar voru 1.252 íbúðir skráðar fullgerðar árið 2021.

Byggingarfulltrúi samþykkti á árinu áform um uppbyggingu á 773 íbúðum, þar af 268 á fyrsta ársfjórðungi, 175 á öðrum, 90 á þriðja og 240 á þeim fjórða. Auk þess samþykkti hann áform um uppbyggingu 105 stúdentaíbúða. Hafin var bygging á 913 íbúðum á árinu 2022, þar af 265 á fyrsta ársfjórðungi, 177 á öðrum, 242 á þeim fjórða.

Reykjavíkurborg úthlutaði lóðum undir uppbyggingu 728 íbúða á árinu, þar af voru lóðir fyrir 164 íbúðir á fyrsta ársfjórðungi, 345 á öðrum, 14 á þriðja og 205 á þeim fjórða. Þetta kemur til viðbótar samningum sem gerðir voru um uppbyggingu á lóðum þar sem byggja má 1.006 íbúðir. Þar af voru lóðir fyrir 619 íbúðir í samningum á fyrsta ársfjórðungi, 344 á öðrum ársfjórðungi og 43 á þeim fjórða.

Í lok árs 2022 voru 2.478 íbúðir í byggingu í Reykjavík samanborið við 2.484 við lok þriðja ársfjórðungs, 2.536 við lok annars og 2.448 við lok þess fyrsta.

Til þess að uppfylla megi húsnæðissamkomulag Reykjavíkur, innviðaráðuneytisins og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar frá 5. janúar 2023, skuldbindur borgin sig til að hafa tiltækar á hverjum tíma byggingarhæfar lóðir fyrir byggingu 1.500 til 3.000 íbúða. Við lok árs 2022 voru til byggingarhæfar lóðir þar sem byggja má 2.119 íbúðir.

  Júlí 2022 Íbúum Reykjavíkur fjölgaði um 1.383 á fyrri helmingi ársins 2022, þar af um 1.113 á öðrum ársfjórðungi. Það sem af er árinu 2022 hafa 532 nýjar íbúðir komið inn á húsnæðismarkaðinn í Reykjavík, þar af 362 á fyrsta og 170 á öðrum ársfjórðungi. Byggingarfulltrúi hefur samþykkt áform um uppbyggingu á 443 íbúðum, þar af 268 á fyrsta og 175 á öðrum ársfjórðungi. Hafin var bygging á 442 íbúðum á fyrri helmingi ársins 2022, þar af 265 á fyrsta ársfjórðungi og 177 á öðrum. Reykjavíkurborg úthlutaði lóðum undir uppbyggingu rúmlega 500 íbúða á sjö reitum á fyrri helmingi ársins, þar af rúmlega 160 á fyrsta og tæplega 350 á öðrum ársfjórðungi. Þá gerði borgin uppbyggingarsamninga á fimm reitum þar sem byggja má um 960 íbúðir, þar af tæplega 620 á fyrsta og rúmlega 340 á öðrum ársfjórðungi.

 

Tenging aðgerðar við stefnur Reykjavíkurborgar:

 

Tengdar aðgerðir

Taflan hér fyrir neðan inniheldur þær aðgerðir sem tengjast þessari aðgerð og hægt er að nálgast frekari upplýsingar með því að smella á "heiti aðgerðar" í töflunni (ef þú ert í síma er betra að snúa símanum á hlið).