Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð - Fundur nr. 70

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð

Ár 2022, mánudaginn 28. febrúar var haldinn 70. fundur menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi og hófst hann kl. 13:30. Viðstödd voru: Hjálmar Sveinsson, Diljá Ámundadóttir Zoega varamaður fyrir Pawel Bartoszek, Líf Magneudóttir, Katrín Atladóttir, Baldur Borgþórsson og Vigdís Hauksdóttir. Ellen Calmon tók sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði. Eftirtaldir embættismenn og aðrir starfsmenn sátu fundinn: Huld Ingimarsdóttir starfandi sviðsstjóri hjá menningar- og ferðamálasviði, María Rut Reynisdóttir skrifstofustjóri menningarmála hjá menningar- og ferðamálasviði og Signý Leifsdóttir verkefnastjóri hjá menningar- og ferðamálasviði sem ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á stefnumótun á starfsemi í Viðey – Trúnaðarmál.

    -    Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafns situr fundinn undir þessum lið. 

  2. Lögð fram greinargerð starfshóps um stefnumótun á starfsemi í Viðey og tillaga að skipan stýrihóps – Trúnaðarmál. 
    Samþykkt.

    -    Guðbrandur Benediktsson safnstjóri Borgarsögusafns situr fundinn undir þessum lið.

  3. Lagt fram minnisblað safnstjóra Borgarsögusafns dags. 24. febrúar 2022 um útboð á þjónustu við siglingar og veitingarekstur í Viðey.

    Fylgigögn

  4. Lögð fram yfirlýsing dómnefndar Barnabókaverðlauna Guðrúnar Helgadóttur 2022 dags. 24. febrúar 2022 – Trúnaðarmál.

  5. Lagðar fram uppfærðar reglur vegna Borgarhátíða 2023-2025 - Trúnaðarmál.  
     Samþykkt.

    Fylgigögn

  6. Fram fer kynning á Tónlistarborginni Reykjavík og starfsáætlun fyrir 2022.

    Fylgigögn

  7. Lögð fram tillaga starfandi sviðsstjóra menningar- og ferðamálasviðs dags. 24. febrúar 2022 um að Tónlistarborgin Reykjavík verði varanlegt verkefni - Trúnaðarmál.
     Frestað.

Fundi slitið klukkan 14:53

PDF útgáfa fundargerðar
70._fundargerd_menningar-._ithrotta-_og_tomstundarads_fra_28._februar_2022.pdf