Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð - fundur nr. 46

Mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráð

Ár 2021, fimmtudaginn 23. september var haldinn 46. fundur, mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs. Fundurinn var haldinn í Höfðatorgi og hófst kl. 13.06. Fundinn sátu: Dóra Björt Guðjónsdóttir, Aron Leví Beck, Diljá Ámundadóttir og Kolbrún Baldursdóttir. Eftirtaldir fulltrúar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs tóku sæti á fundinum með fjarfundarbúnaði með vísan til heimilda í auglýsingu nr. 1436/2020 um ákvörðun samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra skv. VI. bráðabirgðarákvæðis sveitarstjórnarlaga, nr. 138/2011: Örn Þórðarson og Daníel Örn Arnarsson. Einnig sat fundinn Anna Kristinsdóttir og Karen María Jónsdóttir.

Elísabet Pétursdóttir ritaði fundargerð.

Þetta gerðist:

  1. Fram fer kynning á borgaralegri þátttöku og verkefnum Borgarbókasafns. R21090149 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Flokks fólksins leggja fram svohljóðandi bókun:

    Dögg Sigmarsdóttur er þakkað kærlega fyrir kynninguna. Ótrúlega metnaðarfullt starf er í gangi á Borgarbókasafninu hvað varðar borgaralega þátttöku, opin rými, aðgengi og samsköpun. Mörg tækifæri eru til staðar þegar kemur að því að nýta þennan aðgengilega vettvang til að eiga samtal við íbúa um starfsemi borgarinnar, sem ýtir undir lýðræðisþátttöku borgarbúa.

    -    Kl. 13.14 tekur Ellen J. Calmon sæti á fundinum. 

    Dögg Sigmarsdóttir tekur sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði.

    Fylgigögn

  2. Lögð fram til upplýsingar dagskrá landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga, sem fram fer þann 14. október 2021. R21090159

    Fylgigögn

  3. Lagt fram bréf mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu dags. 20. september 2021, um drög að reglum um samráðsvettvang trú- og lífsskoðunarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. R21010110 
    Samþykkt. 
    Fulltrúi Flokks fólksins situr hjá við afgreiðslu málsins. 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata, Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Þessi samráðsvettvangur trú- og lífsskoðunarfélaga og Reykjavíkurborgar er mótaður í kringum þjónustu Reykjavíkurborgar og er settur upp sem samtalsvettvangur á milli aðila. Verkefnið er komið til sem hugmynd í gegnum Nordic Safe Cities, norrænt samstarf sem borgin tekur þátt í. Starfandi er annar samráðsvettvangur trúar og lífsskoðunarfélaga sem fjallar almennt um málefni félaganna en þessi vettvangur er sértækari og fjallar aðeins um málefni borgarinnar.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Mannréttindaskrifstofa leggur til að stofnaður verði samráðsvettvangur Reykjavíkurborgar og trú- og lífsskoðunarfélaga á höfuðborgarsvæðinu sem eru 36 talsins. Fulltrúa Flokks fólksins finnst þetta ekki vera verkefni borgarkerfisins. Leiðtogar trú- og lífsskoðunarfélaga geta hist að vild eins og allir aðrir án þess að formlegur vettvangur sé stofnaður. Ekki er séð af hverju Reykjavíkurborg ætti að hafa milligöngu um að skapa formlegan farveg fyrir trúfélög til að hittast frekar en ýmis önnur félög eða hópa? Hvar á að draga mörkin? Af hverju trú- og lífsskoðunarfélög á höfuðborgarsvæðinu? En þótt borgin sem slík skapaði ekki einhvern sérstakan formlegan samráðsvettvang fyrir trú- og lífsskoðunarfélög er ekki þar með sagt að borgin eigi ekki að vera í góðu samstarfi við þessi félög og öll önnur félög sem vilja hafa samskipti við Reykjavíkurborg og vinna með borginni. 

    Fylgigögn

  4. Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Flokks fólksins, um úttekt á fátækt á Íslandi, sbr. 12. lið fundargerðar mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráðs frá 9. september 2021. R21090078
    Samþykkt að vísa tillögunni frá með fjórum atkvæðum fulltrúa Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata, gegn þremur atkvæðum fulltrúa Flokks fólksins, Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands. 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar og Pírata leggja fram svohljóðandi bókun:

    Sambærileg tillaga hefur verið lögð fram í öðru ráði, í borgarráði þann 9. september 2021. Því er tillögunni vísað frá.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Flokks fólksins lagði til að mannréttinda- nýsköpunar og lýðræðisráð í samvinnu við velferðarráð, skóla og frístundaráð kanni fátækt í Reykjavík. Tillögunni er vísað frá með þeim rökum að sambærileg tillaga var lögð fram af fulltrúa Flokks fólksins í borgarráði. Fulltrúi Flokks fólksins telur að mannréttinda- nýsköpunar og lýðræðisráð eigi að fagna tillögu sem þessari og væri hægt að gera margt við hana til að hreyfa við þessu máli. Áhyggjur eru af mannréttindaþætti hinna fátæku og þær skelfilegur aðstæður sem fátækt fólk býr við. Fólk sem berst í bökkum við að ná endum saman á erfitt með að lifa mannsæmandi lífi. Rannsóknir sýna vaxandi fátækt svo ekki er um að villast að stór hópur getur ekki lifað með reisn. Mannréttinda- nýsköpunar og lýðræðisráð getur haft mikið að segja bæði með því að viðurkenna að þessi vandi er raunverulegur og með því að kalla eftir sérstakri vinnu sbr. sem gert var 2008 en þá skipaði Reykjavík starfshóp um fátækt. Nú er mest brýnt að gerð verði ný úttekt og skýrsla um stöðu fátæktar í borginni. Hunsun og andvaraleysi gagnvart þessari neikvæðu þróun er ekki hægt að sætta sig við.

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Fulltrúi Sjálfstæðisflokks lýsir vonbrigðum yfir því að tillögu Flokks fólksins um úttekt á fátækt í Reykjavík sé vísað frá. Tillögunni er ætlað að skoða stöðu alvarlegra mála á viðkvæmum tímum í kjölfar Covid. Ákall um slíka úttekt ætti að koma frá mannréttindaráði og ætti að kalla á samstarf við velferðarsvið og skóla- og frístundasvið. Frávísun byggðri á tæknihindrunum vegna stjórnsýslulegra málsmeðferðarferla ætti alls ekki að koma frá lýðræðisráði borgarinnar. Sé slík fyrirstaða fyrir hendi innan borgarkerfisins ætti það að vera verkefni lýðræðisráðs að finna leiðir til að koma tillögum sem þessum áfram innan kerfisins, í stað þess að láta kerfið segja sér fyrir verkum. Frávísunin er því mikil vonbrigði, bæði vegna þess að þar er á ferð vel ígrunduð og þörf tillaga, og sömuleiðis að stjórnsýsluleg málsmeðferð sé notuð til að vísa henni frá. Við sitjum í mannréttinda og lýðræðisráði.

    Fylgigögn

  5. Fram fer kynning á verkefninu Snjöll og jöfn, styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna 2021. R21010085 

    Fulltrúar Samfylkingar, Viðreisnar, Pírata, Sjálfstæðisflokksins og Sósíalistaflokks Íslands leggja fram svohljóðandi bókun:

    Mjög áhugaverðar niðurstöður koma fram í rannsóknarskýrslunni Snjöll og jöfn um jafnrétti og ferðamáta. Karlar nota samkvæmt þessu frekar deilihlaupahjól en önnur kyn. Stærra hlutfall fólks með erlendan ríkisborgararétt notar deilihlaupahjól en fólk með íslenskan ríkisborgararétt, þessi hópur notar líka strætó og ferðast fótgangandi frekar en fólk með íslenskan ríkisborgararétt. Svona gögn eru mikilvæg því þau er hægt að nýta til að styðja við jafnrétti þegar kemur að því að ferðast um borgina.

    Fulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:

    Farið er yfir skýrslu könnunar sem var unnin í júní–ágúst 2021 og var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna, Rannís og Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar. Í apríl árið 2018 var haldin hugmyndakeppnin Borgarhakk til að finna framtíðarlausnir fyrir þjónustu Reykjavíkurborgar. Keppnin var á vegum Snjallborgarinnar, en Snjallborgin var verkefni á vegum þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Snjallborgin setti af stað ýmis tilraunaverkefni í Reykjavík en mörg þeirra voru ekki kláruð (Óskar Sandholt, munnleg heimild, 15. júní, 2021). Fulltrúi Flokks fólksins myndi mun vilja fá upplýsingar um þessi ókláruðu verkefni. Fulltrúi Flokks fólksins vill nefna að við mótun rannsókna- eða skoðunarverkefna má hafa í huga að við erum ekki ein í heiminum. Þess vegna þarf kannski ekki svo mikið að greina og skilja notendahegðun sem í rauninni er ekki frábrugðin notendahegðun í öðrum sambærilegum borgum. Vel má skoða hvað er að koma út úr svona könnunum í löndum sem við berum okkur saman við.

    Birta Ósk Tómasdóttir og Sigríður Finnbogadóttir taka sæti á fundinum undir þessum lið með fjarfundarbúnaði. 

    Fylgigögn

  6. Lögð fram svohljóðandi fyrirspurn Fulltrúa Flokks fólksins:

    Farið er yfir skýrslu könnunar sem kallast Snjöll og jöfn, (Tengsl fjölbreyttra þarfa fólks á ferðinni og snjallra ferðamáta), sem var unnin í júní–ágúst 2021 og var styrkt af Nýsköpunarsjóði námsmanna, Rannís og Mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar. Í henni kemur fram að haldin var hugmyndakeppnin Borgarhakk til að finna framtíðarlausnir fyrir þjónustu Reykjavíkurborgar. Keppnin var á vegum Snjallborgarinnar, en Snjallborgin var verkefni á vegum þjónustu- og nýsköpunarsviðs. Snjallborgin setti af stað ýmis tilraunaverkefni í Reykjavík en mörg þeirra voru ekki kláruð (Óskar Sandholt, munnleg heimild, 15. júní, 2021). Fulltrúi Flokks fólksins óskar eftir að fá upplýsingar um þessi ókláruðu tilraunaverkefni. Hvaða verkefni er hér verið að vísa til? Óskað er upplýsinga um hvert og eitt og hvað sett var mikið fé í hvert tilraunaverkefni sem síðan var ekki klárað? Óskað er lýsingar á hverju verkefni fyrir sig, hvert var markmið þess og tilgangur? R21090215

      Fundi slitið klukkan 14:44

      Dóra Björt Guðjónsdóttir Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir

      PDF útgáfa fundargerðar
      mnl_2309.pdf