Hverfisráð Miðborgar
HVERFISRÁÐ MIÐBORGAR
Ár 2004, miðvikudagurinn 22. desember, var haldinn 22. fundur hverfisráðs miðborgar. Fundurinn hófst kl. 14 að Pósthússtræti 7. Viðstaddir voru Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, Þorleifur Gunnlaugsson, Gísli Marteinn Baldursson og Kristín Einarsdóttir sem ritaði fundargerð.
Þetta gerðist:
1. Framlag vegna dagskrár borgarinnar á Þorláksmessu. Hverfisráðið samþykkir að hlaupa undir bagga til að unnt sé að fá tenóra og sóprana til að syngja af svölum Sólon á Þorláksmessukvöld eins og hefðbundið er og borgaryfirvöld hafa tekið að sér að sjá um. Styrkfjárhæð hverfisráðsins er kr. 300 þúsund. Hins vegar er áréttað að með þessu getur ekki skapast neitt fordæmi. Þeir takmörkuðu fjármunir sem hverfisráði miðborgar eru úthlutaðir eiga ekki að fara í að draga aðrar stofnanir borgarinnar að landi. Peningar þess eiga fyrst og fremst að nýtast íbúum hverfisins til hagsbóta og í þágu hverfalýðræðis.
2. Styrkumsókn frá samstarfsnefnd friðarhreyfinga. Hverfisráðið samþykkir að veita kr. 100 þúsund til friðargöngunnar á Þorláksmessu í ár. Gísli Marteinn Baldursson sat hjá við afgreiðslu málsins.
3. Fjármál og styrkveitingar ársins 2005. Eftir nokkrar umræðum um málið var ákveðið að taka málið aftur upp á næsta fundi og ræða þá um stefnumörkun ráðsins fyrir næsta ár.
4. Lögreglumálefni. Ítreka ósk hverfisráðsins um fund með samstarfsnefnd lögreglu og borgar um löggæslu í miðborginni.
5. Lagt fram afrit af bréfi dags. 15. desember 2004 sem foreldraráð Austurbæjarskóla sendi skipulags- og byggingarnefnd og samgöngunefnd um bílastæði við Vörðuskóla.
Fundi slitið kl 15:15.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Þorleifur Gunnlaugsson Gísli Marteinn Baldursson