Borgarstjórn - Fyrsti fundur 2001

Borgarstjórn

B O R G A R S T J Ó R N

Ár 2001, fimmtudaginn 4. janúar, var haldinn reglulegur fundur í Borgarstjórn Reykjavíkur. Fundurinn var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur og hófst kl. 17.00. Voru þá komnir til fundar, auk borgarstjóra, eftirtaldir borgarfulltrúar og varaborgarfulltrúar: Helgi Hjörvar, Hrannar Björn Arnarsson, Sigrún Magnúsdóttir, Helgi Pétursson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Anna Geirsdóttir, Guðlaugur Þór Þórðarson, Jóna Gróa Sigurðardóttir, Inga Jóna Þórðardóttir, Guðrún Pétursdóttir og Ólafur F. Magnússon. Fundarritun önnuðust Gunnar Eydal og Kristbjörg Stephensen.

Þetta gerðist:

1. Lögð fram fundargerð borgarráðs frá 29. desember.

- Kl. 17.01 tók Alfreð Þorsteinsson sæti á fundinum. - Kl. 17.03 tóku Júlíus Vífill Ingvarsson og Kjartan Magnússon sæti á fundinum.

2. Lögð fram fundargerð fræðsluráðs frá 18. desember.

3. Lögð fram fundargerð skipulags- og byggingarnefndar frá 20. desember. B-hluti fundargerðarinnar samþykktur með samhlj. atkv.

Fundi slitið kl. 19.10.

Forseti og skrifarar gengu frá fundargerð.

Helgi Hjörvar

Hrannar Björn Arnarsson Ólafur F. Magnússon