Yfirlýsing um réttindi geðfatlaðs fólks

Mannréttindi

""

Yfirlýsing mannréttinda- og lýðræðisráðs Reykjavíkurborgar um réttindi geðfatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu.

Mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar ítrekar rétt fatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu í samfélagi við fatlað jafnt sem ófatlað fólk, varar við fordómum gegn geðfötluðu fólki og segir það þrautseiga mýtu að fylgni sé á milli geðfötlunar og þess að beita ofbeldi. Tilefnið er umræða og undirskriftarlisti vegna fyrirætlana um byggingu búsetuúrræðis fyrir geðfatlað fólk í Hagaseli í Seljahverfi.

Á fundi mannréttinda-  og lýðræðisráðs sem fram fór 11. apríl fór fram umræða um réttindi fatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu samkvæmt samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Lögð var fram samhljóða bókun mannréttinda- og lýðræðisráðs um málið.

Bókunin er svohljóðandi:

„Vegna umræðu um nýtt búsetuúrræði fyrir geðfatlað fólk í Hagaseli í Seljahverfi vill mannréttinda- og lýðræðisráð Reykjavíkurborgar ítreka skýlausan rétt fatlaðs fólks til sjálfstæðrar búsetu og sameinandi samfélags án aðgreiningar eins og fram kemur í samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks.

Ekki stafar sérstök hætta af geðfötluðu fólki og mikilvægt að ala ekki á slíkum fordómum. Það virðist þrautseig mýta að fylgni sé milli geðfötlunar og þess að beita ofbeldi. Reynslan er hins vegar sú að geðfatlaðir eru líklegri til að vera þolendur ofbeldis en gerendur þess.

Í dag býr á fimmta hundrað fatlaðra ein­stak­ling­a í sambærilegum búsetuúrræðum víðs veg­ar um borg­ina. Fyrirhuguð er mikil uppbygging fyrir fatlað fólk í Reykjavík, eða á annað hundrað íbúðir á næstu 10 árum og er þörfin fyrir lóðir í grónum hverfum því brýn.

Fatlað fólk á rétt á sjálfstæðu lífi á eigin forsendum í samfélagi við fatlað og ófatlað fólk. Þann rétt stöndum við vörð um.“