Yfir 60 fyrirtæki ætla að setja sér markmið í loftslagsmálum

Stjórnsýsla Umhverfi

""
Rúmlega sextíu fyrirtæki munu skrifa undir yfirlýsingu um loftslagsmál í Höfða næstkomandi mánudag og enn bætist í hópinn. Með undirritun sinni skuldbinda þau sig til að setja sér markmið og fylgja þeim eftir með aðgerðum sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka myndun úrgangs. 

Draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og mæla árangur

Yfirlýsingin sem skrifað verður undir hljóðar svo:
 
Við undirrituð ætlum að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og lágmarka neikvæð umhverfisáhrif með markvissum aðgerðum.

Þjóðir heims standa nú frammi fyrir afleiðingum loftslagsbreytinga. Sameinuðu þjóðirnar gegna forystuhlutverki í að greina vandann, takast á við hann og aðlagast breyttum aðstæðum.

 
Borgir og bæir ásamt fyrirtækjum af öllum stærðum, verða sífellt mikilvægari þegar kemur að því að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og standast þau markmið sem sett hafa verið um losun þeirra.
Á Íslandi er ein helsta áskorunin mengandi samgöngur og losun úrgangs. Við ætlum að sýna samfélagslega ábyrgð í verki með því að:
  1. draga úr losun gróðurhúsalofttegunda
  2. minnka myndun úrgangs
  3. mæla árangurinn og gefa reglulega út upplýsingar um stöðu ofangreindra þátta.
 

Öflug fyrirtæki taka þátt

Í hópi þeirra fyrirtækja sem ætla með yfirlýsingu og aðgerðum að sýna samfélagslega ábyrgð í verki eru flest stærstu fyrirtæki landsins og stórar stofnanir eins og háskólarnir.  Áhrif þessa sameiginlega átaks geta því orðið umtalsverð.
 
Reykjavíkurborg og Festa, miðstöð um samfélagsábyrð fyrirtækja, halda utan um verkefnið og var aðildarfyrirtækjum Festu, stofnunum og fyrirtækjum Reykjavíkurborgar og 300 stærstu fyrirtækjum á Íslandi boðin þátttaka í verkefninu og hafa þau frest til og með 10. nóvember til að skrá sig.
 
Þátttakendur í stafrófsröð (uppfærður listi er á vef Festu):
  • CCP
  • Deloitte ehf.
  • EFLA verkfræðistofa
  • Egilsson ehf.
  • Eimskipafélag Íslands hf.
  • Elkem Ísland
  • Faxaflóahafnir sf.
  • Gámaþjónustan hf.
  • Græn Framtíð ehf.
  • Hannesarholt ses.
  • Harpa tónlistar- og ráðstefnuhúsið í Reykjavík
  • Háskólinn á Akureyri
  • Háskóli Íslands
  • Háskólinn í Reykjavík
  • HB Grandi
  • Hlaðbær-Colas hf.
  • HS Orka hf.
  • Höldur ehf. - Bílaleiga Akureyrar
  • Iceland Excursions Allrahanda ehf.
  • Isavia ohf.
  • Íslandshótel hf.
  • Íslenska Gámafélagið ehf.
  • KPMG ehf.
  • Landsvirkjun
  • Lín Design (Framsýnt fólk)
  • Lyfja hf.
  • Malbikunarstöðin Höfði hf.
  • Marel hf.
  • Míla ehf.
  • Nasdaq Iceland
  • Neyðarlínan ohf.
  • Norðurál
  • Oddi prentun og umbúðir ehf.
  • Olíuverzlun Íslands hf.
  • ON - Orka Náttúrunnar
  • Orkuveita Reykjavíkur
  • Podium ehf.
  • Ráðgjafarfyrirtækið Alta
  • Reykjagarður hf.
  • Reykjavíkurborg
  • Samkaup
  • Samskip hf.
  • Securitas hf. 
  • Sjóvá-Almennar tryggingar hf.
  • Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins bs.
  • SORPA bs.
  • Strætó bs.
  • Tryggingamiðstöðin hf.
  • Vátryggingafélag Íslands
  • Vörður tryggingar hf.
  • Wow air
  • Össur hf.
Nánari upplýsingar: