Vinsamlegt samfélag fær hvatningarverðlaun

Skóli og frístund

""
Illugi Gunnarsson mennta- og menningarmálaráðherra veitti í dag verkefninu Vinsamlegt samfélag hvatningarverðlaun Dags gegn einelti 2015.
Nanna K. Christiansen, verkefnastjóri á fagskrifstofu skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar og formaður starfshópsins um Vinsamlegt samfélag tók við verðlaununum við athöfn sem Menntamálastofnun og Kópavogsbæ stóðu fyrir í leikskólanum Álfaheiði. Viðurkenningin sem starfshópurinn fékk er listaverk eftir Koggu sem heitir Egg snjófuglsins. Börn í leikskólanum Álfaheiði sungu fyrir gesti við athöfnina m.a. Ég er svo fús til að gefa þér knús. 
Verkefnið Vinsamlegt samfélag þykir hafa sýnt sig og sannað sem góður samstarfsvettvangur gegn einelti þar sem öllum hagsmunaaðilum er stefnt saman með það markmið í huga að berjast gegn einelti. Verkefnið teygir anga sína langt út fyrir skólann eða frístundasviðið og sameinar gríðarlegan fjölda fólks undir sama markmiði.
 
Nanna Kristín sagði þegar hún tók við verðlaununum að einelti væri félagslegt vandamál fremur en vandamál einstaklinga og að góður skólabragur væri besta forvörnin gegn því. Þá sagði hún verðlaunin hvatningu til að vinna áfram að þessu verkefni sem byggði á menntastefnu Evrópuráðsins. 
 
Vinsamlegt samfélag er samfélag sem við viljum öll búa í. Samfélag sem er meðvitað um einelti og vinnur statt og stöðugt gegn því en bregst einnig skjótt og rétt við ef slík mál koma upp. Samfélag sem vinnur saman og stendur saman.
 
Sjá meira um aðgerðir gegn einelti á vef Menntamálastofnunar.