Viðhald á þrýstilögnum fráveitu frá dælustöð við Hafnarbraut sem liggur yfir Fossvoginn og þrýstilögn frá dælustöð við Sæbólsbraut að Fossvogsræsi.
Í samráði við Heilbrigðiseftirlit Hafnafjarðar – og Kópavogssvæðis verða þrýstilagnir frá dælustöðvunum við Hafnarbaut og Sæbólsbraut hreinsaðar föstudaginn 23. nóvember til og með mánudeginum 26. nóvember.
Ekki er gert ráð fyrir að dælustöðvarnar fari á yfirfall við þessar framkvæmdir en einhverjar líkur eru á því að það geti gerst.
Upplýsingar um framgang verksins verða birtar á vef Kópavogsbæjar.
Ráðleggingar til íbúa
Ef nauðsynlegt reynist að setja dælustöðvar á yfirfall er ekki talið ráðlegt að stunda sjóböð eða fjöruferðir í Fossvogi á meðan á þessum framkvæmdum stendur. Heilbrigðiseftirlitið hefur látið Ylströndina vita af viðhaldi dælustöðvanna.
Starfsmenn Kópavogs munu fylgjast með framgangi verksins og hafa eftirlit með fjörum með vitund og samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.