Vetrarhátíð verður sett við hátíðlega athöfn í kvöld fimmtudaginn 6. febrúar kl. 19:30 í safni Einars Jónssonar. Hátíðin verður öll hin glæsilegasta og mun fjöldi listamanna taka þátt í að skapa einstaka stemningu í borginni. Skoðaðu dagskrá hátíðarinnar þar er margt spennandi og áhugavert og allir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Jón Gnarr borgarstjóri mun setja Vetrarhátíð í kvöld fimmtudag 6. febrúar klukkan 19:30 í garði Listasafns Einars Jónssonar, með tendrun 10 ljósalistaverka sem staðsett verða í miðborg Reykjavíkur.
Ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi á hátíðinni og verða ljósalistaverk staðsett á fjölsóttum stöðum um alla borg auk þess sem byggingar og almenningsrými verða lýst upp með fjölbreyttum hætti. Ljósalistaverkin Circle 6, Lys*arp, On the bridge, Jellyfish og Styttur borgarinnar vakna eru styrkt af Kultur Kontakt Nord (nánari lýsing á verkum í viðhengi).
Aðrar ljósainnsetningar á Vetrarhátíð verða Guerilla lighting með lýsingarfræðinemum úr Tækniskólanum og krökkum úr félagsmiðstöðvum í Breiðholti, Hönd í hönd við Reykjavík sem er nýtt ljósaverk Ólafs Elíassonar, Afhjúpun Tollhússins er ljósaverk eftir Dario Nunez Salazar og nemendur Tækniskólans verða með ljósainnsetningu við Tækniskólann á Skólavörðuholti.
Ljósaverkin lýsa upp fegurð borgarinnar á skemmtilegan máta en verkin eru öll í göngufæri við hvert annað. Njóta má skammdegis febrúarmánaðar með ljósagöngu milli ljósalistaverkanna og upplifa borgina á nýjan hátt.
Samspil ljóss og myrkurs verður magnað á Vetrarhátíð!Ljós, myrkur og gleði verða allsráðandi á hátíðinni að þessu sinni og verða ljósalistaverk staðsett á fjölsóttum stöðum um alla borg auk þess sem byggingar og almenningsrými verða lýst upp með fjölbreyttum hætti. Verkin verða hluti af ljósagöngu sem íbúar og gestir borgarinnar eru hvattir til þess að ganga og njóta.
Strax að lokinni setningu Vetrarhátíðar verða haldnir magnaðir tónleikar, Denver Calling, í Iðnó og hefjast þeir klukkan 21. Tónleikarnir eru samstarfstónleikar tónlistarmanna frá Reykjavík og Denver í Colorado í Bandaríkjunum.
Á tónleikunum stilla tónlistarmennirnir strengi sína saman og flytja tónlist hvors annars með skemmtilegri útkomu. Íslensku tónlistarmennirnir sem koma fram eru hin þjóðþekktu Högni Egilsson (Hjaltalín og Gus Gus), Lay Low og Snorri Helgason. Frá Denver koma þau Tyler Ludwick (Princess Music), Esmé Patterson (Paper Bird) og Jesse Elliott (Ark Life).
Samstarf tónlistarmannanna hófst á tónleikunum Reykjavík Calling sem haldnir voru í Denver í september 2013 undir sömu formerkjum. Tónleikarnir heppnuðust mjög vel og fengu frábærar undirtektir og komust færri að en vildu.
Tónlistarunnendur ættu ekki að láta þessa tónleika fram hjá sér fara því von er á einstöku tónlistarkvöldi. Ókeypis er inn á tónleikana á meðan húsrúm leyfir.
Á Vetrarhátíð lýsum við upp mesta skammdegið í febrúar með skemmtilegum viðburðum og uppákomum, íbúum og gestum borgarinnar að kostnaðarlausu. Alls verða á hátíðinni 200 viðburðir af ýmsu tagi, stórir sem smáir, en hún stendur yfir í tíu daga.
Nánari upplýsingar um dagskrá Vetrarhátíðar má nálgast á heimasíðu: www.vetrarhatid.is
Magnað samspil ljóss, myrkurs og tónlistar á Vetrarhátíð!