Vestnorræni höfuðborgasjóðurinn auglýsir eftir umsóknum fyrir árið 2019

Menning og listir Mannlíf

""

Sjóðurinn hefur að markmiði að efla skilning og samstarf, m.a. á sviði menningarmála, milli þessara borga, íbúa þeirra, samtaka og stjórnmálamanna og veita fjárstyrki til verkefna sem þjóna þessum markmiðum.

Reykjavíkurborg er aðili að Vestnorræna höfuðborgasjóði Færeyja, Grænlands og Íslands.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum til verkefna sem tengjast samskiptum milli höfuðborganna og efla tengsl þeirra með einhverjum hætti, t.d. á sviði menningar, fræðslu eða íþrótta.

Í umsókn skal lýsa fyrirhuguðum verkefnum ítarlega, fyrirkomulagi þeirra, tímasetningu og kostnaði.

Umsókn skal beint til:

Vestnorræni höfuðborgasjóður Nuuk, Reykjavíkur og Þórshafnar

b.t. skrifstofu borgarstjóra og borgarritara

Ráðhúsi Reykjavíkur

Tjarnargötu 11,

101 Reykjavík

Umsóknir berist eigi síðar en föstudaginn 26. apríl 2019 og koma umsóknir sem síðar kunna að berast ekki til afgreiðslu.

Umsóknir skal senda á ofangreint heimilisfang eða á netfangið vestnor@reykjavik.is á þessum umsóknareyðublöðum.

Upplýsingar eru veittar á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara, Ráðhúsi Reykjavíkur, s. 411 4500.

Stjórn sjóðsins tekur ákvörðun um úthlutun á fundi sínum í Reykjavík síðustu vikuna í maí 2019.