Verkferlum breytt þegar grunur vaknaði um brot

Velferð

""

Yfirlýsing frá velferðarsviði Reykjavíkurborgar vegna dóms sem féll í Héraðsdómi Reykjavíkur 2. september og varðar brot fyrrverandi starfsmanns.  

Reykjavíkurborg rekur skammtímavistun fyrir fatlað fólk að Holtavegi í Reykjavík. Í febrúar árið 2019 vaknaði grunur um að starfsmaður velferðarsviðs Reykjavíkurborgar hefði brotið á ungri fatlaðri konu, sem var í skammtímavistun. Brotin hefðu átt sér stað þegar starfsmaðurinn var einn með konunni og hún var í sturtu. Starfsmaðurinn var þá þegar sendur í leyfi. 

Þann 2. september síðastliðinn var starfsmaðurinn dæmdur fyrir brot sín í Héraðsdómi Reykjavíkur. Dómurinn er sögulegur sigur i réttindabaráttu fatlaðra kvenna, líkt og kom fram í máli konunnar og móður hennar í kvöldfréttum RÚV í gær. Ástæða er til að lýsa þeim breytingum sem gerðar voru á verkferlum skammtímavistunarinnar að Holtavegi um leið og málið kom upp:

  • Allir verkferlar sem varða aðstoð við persónulegt hreinlæti hafa verið yfirfarnir og endurskoðaðir. Skýr kynjaskipting hefur verið tekin upp og notendur fá einungis aðstoð frá starfsmönnum af sama kyni.

  • Tómstundastarf hefur verið skipulagt upp á nýtt, til að draga sem mest úr þeim aðstæðum þar sem starfsmenn eru einir með notendur.

  • Ávallt eru nú tveir starfsmenn á næturvöktum, sem tryggir öryggi notenda og starfsmanna.

Allir aðstandendur þeirra sem dvöldu á Holtavegi á þeim tíma sem grunur vaknaði um brot voru upplýstir um málið og þeir hvattir til að hafa samband við lögreglu ef þeir hefðu minnsta grun um að eitthvað hefði komið fyrir þeirra barn eða ungmenni í skammtímavistuninni. 

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar og stjórnendur á Holtavegi harma að starfsmaður skammtímavistunarinnar hafi gerst sekur um svo alvarlegt brot og hafa dregið lærdóm af málinu.