Vegna leka í Fossvogsskóla

""

Leki hefur komið upp í Vesturlandsbyggingu Fossvogsskóla. Lekið hefur með þakgluggum sem endurnýjaðir voru í haust og hefur lekinn valdið sjáanlegum skemmdum á innra byrði þaksins.

Reynt hefur verið að komast í veg fyrir lekann síðan í desember en viðgerðir hafa ekki tekist að fullu. Slæmt tíðarfar undanfarinna vikna hefur gert viðgerðamönnum erfitt fyrir.

Reykjavíkurborg mun ganga hratt og vel til verks um leið og færi gefst til að koma í veg fyrir lekann og lagfæra skemmdir sem hafa orðið vegna hans.   

Miklar endurbætur voru gerðar á Fossvogsskóla í haust vegna rakaskemmda og því miður tókst ekki betur til. Farið verður yfir það með fagaðilum hverju hafi verið ábótavant við verkið.

Farið var í eftirfarandi framkvæmdir í sumar og lauk þeim síðla hausts.

Endurbætur vegna rakaskemmda innanhúss:  Unnið var í öllum álmum, minnst í Austurlandi og mest í Vesturlandi. Víða var almálað, sett ný gólfefni, nýjar LED lýsingar, ný kerfisloft, nýjar innréttingar og handlaugar ofl. Unnið var að endurbótum vegna rakaskemmda eftir forskrift frá verkfræðistofunni Verkís og Náttúrufræðistofnun Íslands. Samhliða því gekk hluti framkvæmda út á að bæta innivist og hljóðvist Fossvogsskóla.

Loftræsting: Settar voru nýjar öflugar loftræstisamstæður í Vesturland og Meginland, ásamt umtalsverðum endurbótum á stofnlögnum, endurnýjun hljóðgildra, inn- og útsogsrista ofl.

Endurnýjun þaka Vesturlands og Miðlands: Þök beggja álma voru endurgerð að miklu leyti, settur á þau eldsoðinn pappi, klæðningar endurnýjaðar að hluta, gluggakerfi endurbætt og nýtt bárujárn sett á þökin.

Glerveggur í bókasafni: Settur var nýr glerveggur í bókasafni.

Matsalur og veggir á lóð:  Settur var stór gluggi með tveimur flóttaleiðum á suðurvegg matsals, gerð aðstaða innanhúss fyrir frístund, setbekkir, tröppur og útigeymsla sunnan við matsal.

Lóðarfrágangur: Á eystri hluti lóðar skólans voru settar öflugar frárennslislagnir yfirborðsvatns, stígur var malbikaður og lóðin þökulögð. Eftir er að ljúka frágangi í kringum veggi og setbekki við matsal ásamt hellulögnum.

 Reglubundið viðhald skólans: Samhliða ofanskráðum framkvæmdum var unnið að reglubundnu viðhaldi skólans eins og endurnýjun raflagna, smáspennulagna, lýsingar og gólfefna.