Veglegri styrkir til tónlistarfólks í útrás

Menning og listir Mannlíf

""

Stjórn Reykjavíkur Loftbrúar hefur samþykkt breytingar á áherslum og umfangi sjóðsins. Í stað smærri mánaðarlegra úthlutana í formi farmiða verður úthlutun sjóðsins nú ein á ári þar sem valin verða allt að fimm verkefni úr hópi umsækjenda, sem fá veglegt tveggja milljóna króna gjafabréf sem hægt verður að nota að vild í ferðir og aukafarangur með Icelandair.

  • Veglegri styrkir til færri verkefna með úthlutun einu sinni á ári
  • Allt að fimm verkefni fá 2 milljónir hvert til að kaupa ferðir og aukafarangur með Icelandair
  • Breytingarnar gerðar til að mæta nýjum tímum og styðja með veglegum hætti við tónlistarfólk sem er í markvissri útrás með sína tónlist
  • Búið að opna fyrir umsóknir, umsóknarfrestur er til og með 17. apríl

Með þeim breytingum sem nú hafa verið gerðar á sjóðnum er styrkur frá Reykjavík Loftbrú hrein búbót fyrir tónlistarfólk sem getur nýtt gjafabréfið til að kaupa flug og aukafarangur með Icelandair en breytingarnar á Reykjavík Loftbrú eru gerðar til að geta stutt enn betur við bakið á tónlistarfólki sem er í markvissri útrás með sína tónlist. Markmiðið með Reykjavík Loftbrú er einmitt að styðja við bakið á íslensku tónlistarfólki sem vill hasla sér völl á erlendri grundu og kynna um leið Reykjavík sem tónlistar- og menningarborg og spennandi viðkomustað ferðamanna.

Opið er fyrir umsóknir um styrki frá Reykjavík Loftbrú á vef Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar og er umsóknarfrestur til og með 17. apríl. Allt tónlistarfólk, óháð tónlistarstíl og stefnu, sem verður með tónleika erlendis á árunum 2018 og 2019 getur sótt um styrk úr sjóðnum. Miðað er við að umsækjendur séu ekki á byrjunarreit, heldur séu komnir á legg, hafi gefið út efni með eigin verkum og/eða flutningi, séu með samstarfsaðila í utanumhaldi og framkvæmd tónleikahalds og geti lagt fram gögn um verkefni á erlendri grundu sem að mati fimm manna úthlutunarnefndar eru talin geta styrkt ímynd Reykjavíkur og Íslands alls sem uppsprettu framsækinnar menningar og öflugs tónlistarlífs.