Upplifðu Borgarlínu og framtíðina í samgöngum

Umhverfi

""

Gagnvirk sýning um Borgarlínu var opnuð í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Framtíðaráform ríkisins og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um nýtt samgöngunet á svæðinu eru kynnt á sýningunni sem ber heitið Næsta stopp. Sýningin er lifandi og skemmtileg og því kjörin fyrir alla fjölskylduna.

Næsta stopp er sýning þar sem nýju samgönguneti Borgarlínu, Strætó,  hjólastíga og deililausna eru gerð skil á spennandi hátt. Sýnt er hvernig Strætó og Borgarlína munu spila saman og hvaða áhrif sú uppbygging mun hafa á kerfi almenningssamgangna á svæðinu. Á sýningunni er upplýsingum um  framtíðarskipan í samgöngum á höfuðborgarsvæðinu miðlað á skilmerkilegan og skemmtilegan hátt og leikurinn er aldrei langt undan.

Vistvænir orkugjafar og bætt lýðheilsa

Borgarlínan er notendavænt og öruggt samgöngukerfi almenningsvagna sem mun tengja allt höfuðborgarsvæðið saman með hröðum og tíðum ferðum. Samhliða verður þróað nýtt leiðanet almenningssamgangna á svæðinu sem mun tengjast Borgarlínu. Borgarlínuvagnarnir verða drifnir innlendum vistvænum orkugjöfum og munu því styðja við þróun höfuðborgarsvæðisins að kolefnishlutlausu borgarsamfélagi og bættri lýðheilsu.

Góð aðstaða fyrir hjól og deilifarartæki

Borgarlínustöðvarnar verða lykilpunktar nýja samgöngunetsins og í kringum þær mun skapast aðstæður fyrir margvíslega verslun og þjónustu. Þar verður góð aðstaða fyrir hjól og hverskonar deilifarartæki sem auðvelda fólki síðasta spölinn að Borgarlínustöðinni.  Um allt þetta verður fjallað á skemmtilegan og spennandi hátt á sýningunni Næsta stopp í Ráðhúsinu.

Sýningin er hluti af HönnunarMars og stendur yfir til 24. júní.