Uppbygging íbúða og þjónustu á lóðum Heklu við Laugaveg

Atvinnumál Framkvæmdir

""

Umtalsverð fjölgun íbúða og þjónustuhúsnæðis er fyrirhuguð við ofanverðan Laugaveg á athafnasvæði Heklu við Laugaveg og Brautarholt.  Gert er ráð fyrir að fjöldi íbúða á svæðinu geti verið 320 – 350 íbúðir.

Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Friðbert Friðbertsson forstjóri Heklu skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um uppbygginguna og verður hún samstillt við fyrirhugaðan flutning höfuðstöðva Heklu í Suður-Mjódd, en unnið er að því hjá Reykjavíkurborg að gera þá lóð úthlutunarhæfa.  

Hugmyndasamkeppni er í gangi

Nú stendur yfir hugmyndasamkeppni um framtíðarskipulag svæðis meðfram samgöngu- og þróunarás við Laugaveg og er niðurstöðu dómnefndar að vænta í næsta mánuði.  Að undangengnu forvali voru valin fimm teymi sem eru:

  • ASK arkitektar, Landmótun og Efla.
  • jvantspijker architects frá Hollandi.
  • Yrki arkitektar.
  • Henning Larsen Architects frá Danmörku og Batteríið arkitektar.
  • Björn Ólafs, Daníel Ólafsson, Gunnar P. Kristinsson og Birgir Ö. Jónsson.

Teymin skila gögnum 12. júní og dómnefnd er ætlað að ljúka störfum eigi síðar en 29. júní nk.

Blönduð byggð – íbúðir og þjónusta

Í Aðalskipulagi Reykjavíkur er Laugavegur skilgreindur sem hluti af samgöngu- og þróunarás, en þarna mun hin nýja Borgarlína liggja.   Markmið aðalskipulags er að þétta byggð meðfram ás almenningssamgangna á milli miðborgar og lykil þróunarsvæða í austri.  Við endurskipulagningu svæða sem liggja við samgönguásinn á að þróa núverandi götur í borgargötur með sérakreinum fyrir almenningssamgöngur og hugað er sérstaklega að þéttingu byggðar í grennd við biðstöðvar.

Gert er ráð fyrir blandaðri byggð, íbúðabyggð og atvinnustarfsemi á svæðinu til framtíðar.  

Við uppbygginguna verða lögð til grundvallar markmið Reykjavíkurborgar um aukna hlutdeild leigumarkaðs á húsnæðismarkaði, blöndun byggðar á svæðinu og kauprétt vegna félagslegs húsnæðis og leiguíbúða. Jafnframt er skilyrði að hugsað sé um listskreytingar á svæðinu. Hekla hf. mun kosta vinnu við undirbúning og gerð deiliskipulagsbreytinga á reitnum ásamt Reykjavíkurborg.

Skipulagsferli tveggja uppbyggingarreita þarf að ganga upp

Í samkomulaginu er gert ráð fyrir framtíðaraðstöðu Heklu í Suður-Mjódd. Í ljósi mikilvægis þess að tímaáætlanir og samningagerð um Laugaveg annars vegar og Mjódd hins vegar séu sam¬ræmdar verður myndaður samráðshópur beggja aðila til að verkstýra vinnu við gerð deiliskipulagstillagna og samkeppni. Stillt verður upp sameiginlegri tímaáætlun skipulagsferlis beggja reitanna. Samráðshópurinn skal samræma tímaáætlanir vegna beggja reitanna með það að markmiði að lóð í Suður-Mjódd verði úthlutunarhæf á sama tíma og samþykkt deiliskipulag liggur fyrir á Laugavegi.

Tengt efni: