Undirskriftarsöfnun fyrir íbúakosningu um deiliskipulag við Stekkjarbakka Þ73

Stjórnsýsla Skipulagsmál

""

Undirskriftasöfnun fyrir íbúakosningu um deiliskipulag við Stekkjarbakka Þ73 hófst 31. janúar sl. og stendur til 28. febrúar. 

Borgarráð samþykkti  á fundi sínum 16. janúar síðastliðinn erindi Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun samkvæmt 3. mgr. 108. gr. sveitarstjórnarlaga með þeim fyrirvara að undirskriftasöfnunin og íbúakosningin fjalli ekki um lögformlegt gildi deiliskipulagsins fyrir Stekkjarbakka Þ73, þar sem slíkt stenst ekki lög.

Hægt er að skrifa undir á slóðinni. https://listar.island.is/Stydjum/56

Þann 19. desember síðastliðinn barst Reykjavíkurborg erindi stjórnar Hollvinasamtaka Elliðaárdalsins um fyrirhugaða undirskriftasöfnun í Reykjavík en í tilkynningu frá Hollvinasamtökunum kemur fram að ætlunin sé að "knýja fram íbúakosningu um deiliskipulagið fyrir Stekkjarbakka, sem borgarstjórn samþykkti 19. nóvember s.l. og auglýst var í Stjórnartíðindum 25. nóvember s.l."

 Í 2. gr. reglugerðar nr. 155/2013 um undirskriftasafnanir vegna almennra atkvæðagreiðslna samkvæmt sveitarstjórnarlögum kemur fram að tilkynna skal sveitarstjórn ef fyrirhuguð er undirskriftasöfnun í sveitarfélaginu þar sem óskað er eftir almennri atkvæðagreiðslu um tiltekið mál er varðar sveitarfélagið. Erindið barst Reykjavíkurborg innan þess tíma sem veittur er og er því lagt til að fyrirhuguð undirskriftasöfnun verði samþykkt.

Í erindi Hollvinasamtakanna kemur fram að hugsun samtakanna er sú að deiliskipulag Stekkjarbakka verði fellt úr gildi í íbúakosningu. Eins og fram kemur í umsögn skrifstofu borgarstjórnar stenst það ekki lög. Deiliskipulag verður ekki fellt úr gildi með íbúakosningu. Deiliskipulagið hefur þegar öðlast lögformlegt gildi og verður aðeins breytt með endurskoðun á því í samræmi við málsmeðferðarferla í skipulagslögum og að viðlagðri bótaábyrgð Reykjavíkurborgar. Atkvæðagreiðsla gæti hins vegar snúist um það að Reykjavíkurborg myndi hefja endurskoðun á deiliskipulagi, að virtum þessum málsmeðferðarreglum og hugsanlegri bótaábyrð.

Ekkert er því þannig til fyrirstöðu að fram fari undirskriftarsöfnun og íbúakosning án þess að hún sé beinlínis tengd við þá stjórnvaldsákvörðun sem þegar hefur verið tekin með samþykkt og gildistöku.

Þjóðskrá Íslands hefur verið tilkynnt um ákvörðunina. Undirskriftasöfnun má hefja á þeim degi sem ákvörðun sveitarstjórnar er heimilar hana liggur fyrir, þó eigi síðar en innan tveggja vikna. Skal undirskriftasöfnun lokið innan fjögurra vikna frá því að hún hefst.

Ábyrgðaraðilar undirskriftarsöfnunarinnar eru:

Halldór Páll Gíslason

Anna Sif Jónsdóttir

Halldór Frímannsson