Umsækjendur um leikskólastjórastöðu í Árborg og Ægisborg

Skóli og frístund

""

Mánudaginn 30. mars sl. rann út umsóknarfrestur um stöður leikskólastjóra, annars vegar í Árborg í Árbæjarhverfi og hins vegar í Ægisborg í Vesturbænum.

Tveir umsækjendur sóttu um stöðuna í Árborg. Það voru þær Margrét Lísa Ingimarsdóttir og Sigríður Valdimarsdóttir.

Þrjú sóttu um stöðu leikskólastjóra  í Ægisborg. Það voru þau Adéla Stehliková, Auður Ævarsdóttir og Ásmundur Kristberg Örnólfsson

Ráðið verður í báðar stöðurnar frá 1. júní næstkomandi.

Leikskólinn Árborg

Leikskólinn Ægisborg