Umhverfisvæn bygging rís á Ártúnshöfða og makaskipti á lóðum

Umhverfisvæn bygging á Ártúnshöfða

Tveir samningar voru undirritaðir í dag, annars vegar var um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu við Ártúnshöfða. Hins vegar var undirritaður samningur um makaskiptasamning á lóðum milli Reykjavíkurborgar og SORPU bs.

 

Umhverfisvæn bygging á iðnaðarlóð

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Ingvi Jónsson framkvæmdastjóra Klasa og Karl Þráinsson f.h. Lifandi landslags ehf. undirrituðu í dag samning um lóðarvilyrði fyrir umhverfisvæna byggingu á lóð við Ártúnshöfða.

Umhverfisvæna byggingingin er hluti af verkefninu Re-Inventing Cities á vegum C40, en það eru samtök yfir 90 stórborga sem vinna saman í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Efnt var til alþjóðlegrar samkeppni C40 samtakanna og Reykjavíkurborgar um sjálfbæra uppbyggingu á vannýttu borgarsvæði. Tillagan Lifandi landslag varð hlutskörpust en þar að baki standa T.ark, Jakob+Macfarlane arkitektar í París, Landslag, Efla, EOC verkfræðistofa í París og CNRS í París. Samkvæmt tillögunni er Lifandi landslag hringlaga bygging með blandaðri byggð íbúða, stúdentagarða, þjónustu og athafnarýma, í samspili náttúru og borgar. 

Stærsta timburbygging á Íslandi

Samkvæmt tillögunni á að nota lágkolefnabyggingarefni, þ.m.t. timbur, til þess að draga úr kolefnisspori og stuðla að hringrásarhagkerfi þannig að úrgangur verði minni en ella. 

Lifandi landslag er kolefnislaus bygging sem hefur jákvæð áhrif á umhverfið og skýlir staðbundnu vistkerfi og verður stærsta timburbygging á Íslandi. Græn svæði þekja 75% af lóðinni, þar á meðal græn þök og stór garður í miðjunni.

Hringlaga bygging

Með uppbyggingunni við Elliðaárvog-Ártúnshöfða er verið að breyta iðnaðarsvæði í nýjan umhverfisvænan þéttbýliskjarna. Byggingin er hringlaga og í miðjunni er garður sem er hannaður sem staðbundið vistkerfi og mun taka mið af náttúrunni í kring. Verkefnið mun skapa nýtt vistkerfi í fallegri náttúru Elliðaárinnar og verður í nálægð við Borgarlínuna

Makaskipti á lóðum

Þá undirrituðu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, og Jón Viggó Gunnarsson framkvæmdastjóri SORPU bs. makaskiptasamning um lóðir í Reykjavík. SORPA bs. framselur lóðina að Sævarhöfða 21 til Reykjavíkurborgar en um er að ræða 9000 fermetra leigulóð. Reykjavík framselur til SORPU bs. lóðinni Lambhagavegi 14 í Grafarvogi sem er ríflega 11000 fermetrar að stærð. SORPA bs. hefur hug á að byggja atvinnuhúsnæði undir starfsemi endurvinnslustöðvar á lóðinni.