Umhverfi og skipulag í borg - opinn fundur

Samgöngur Umhverfi

""

Sameiginlegur fundur skipulags- og samgönguráðs og umhverfis- og heilbrigðisráðs verður haldinn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun 12. júní klukkan 10.00 til 12.00

Fundurinn er öllum opinn auk þess sem honum verður streymt á netinu.

Eftirfarandi kynningar verða á dagskrá fundarins:

· Ágengar tegundir í borgarlandinu - árangur starfsins í fyrra og framhald þess í ár

· Framkvæmdir við Hverfisgötu

· Orkuskipti í samgöngum, styrkir til fjöleignarhúsa

· C-40 verðlaunatillögur

· Niðurstöður greiningar út frá aðferðafræði kynjaðrar fjárhags og starfsáætlunar, samgöngur og borgarhönnun

Boðið verður upp á kaffi og meðlæti.

Öll velkomin.