Umferðarljós við gatnamót Sæbrautar og Sundagarða verða óvirk fimmtudagsmorguninn 14. janúar á milli klukkan 5 og 7. Straumleysið er vegna viðgerða hjá Veitum.
Rafmagnsleysið verður á svæði við Sundagarða og Sundaborg en nánar er hægt að lesa um hvar rafmagnsleysið hefur áhrif og skoða kort á vef Veitna.