Umferðarljós óvirk á gatnamótum Bústaðavegar og Háaleitisbrautar

Framkvæmdir

""

Þriðjudagskvöld 8. október kl. 19 – 21 verða umferðarljós gatnamóta Bústaðavegar og Háaleitisbrautar óvirk.

Veitur munu vinna að viðgerð á rafmagnsstreng og því þarf að aftengja ljósin tímabundið meðan á viðgerð stendur.

Vegfarendur eru beðnir um að sýna aðgát og tillitssemi á gatnamótunum.