Tyggjó hreinsað fyrir milljónir á ári

Umhverfi

""

Búið er að setja upp skilti á nokkrum stöðum í miðborginni til að minna fólk á að henda tyggjóinu sínu í ruslið. Reykjavíkurborg eyðir milljónum á ári í að hreinsa tyggjóklessur af gangstéttum borgarinnar.

Tyggjóklessur eru rusl sem er til vandræða í borgum víða um heim og er Reykjavík þar engin undantekning. Árið 2018 var kostnaðurinn 5,2 milljónir króna, árið 2019 nam kostnaðurinn 8,5 milljónum króna og það sem af er ári er búið að eyða 5,5 milljónum króna í að hreinsa tyggjóklessur.

Skiltin eru komin upp á nokkrum vel völdum stöðum í miðborginni.

Það er til mikils að vinna að fá fólk til að nota ruslastampa undir tyggjóið sitt frekar en að búa til ólögulegar klessur á götunni.

Mikil vinna við hreinsun

Tyggjóklessur eru hreinsaðar reglulega en það er dýrt og mikil vinna. Það er erfitt að ná klessunum í burtu. Til þess þarf sérstakan búnað, heitt vatn og stálbursta og það þarf að fara tvær umferðir yfir svæðið til að ná klessunum alveg.

Þar sem tyggjóklessurnar eru mest áberandi, gjarnan nálægt útiveitingasölu, eru einmitt hvað flestir ruslastampar.

1520 ruslastampar í borginni

Ruslastampar í Reykjavík eru alls 1520 talsins; 674 í austurborginni og 846 í vesturborginni. Sem dæmi er unnið í vesturborginni alla daga vikunnar frá klukkan sex á morgnana til fimm á daginn við að tæma stampa. Starfsfólk hefur vart undan á annatímum.

Hér er hægt að skoða staðsetningu ruslastampa í Reykjavík.

Vandmál á heimsvísu

Mannfólk hefur tuggið einhvers konar gúmmí síðustu 5.000 til 9.000 árin. Núna er tyggigúmmí alla jafna úr gerviefni sem brotnar ekki niður í náttúrunni. Það er ólíkt tyggjói fyrri tíma sem var til dæmis búið til úr efni úr trjáberki birkitrjáa eða safa úr greni.

Tyggjóklessuvandamálið er á heimsvísu en til dæmis í Bretlandi eyða sveitastjórnir um tíu milljörðum króna á ári í að hreinsa upp tyggjóklessur.