Tveir nýir sviðsstjórar hjá Reykjavíkurborg

Eiríkur Björn Björgvinsson nýráðinn sviðsstjóri menninga-, íþrótta- og tómstundasviðs og Rannveig Einarsdóttir nýráðin sviðsstjóri velferðarsviðs

Rannveig Einarsdóttir hefur verið ráðin nýr sviðsstjóri velferðarsviðs Reykjavíkurborgar og Eiríkur Björn Björgvinsson hefur verið ráðinn í stöðu sviðsstjóra nýs sameinaðs sviðs menningar, íþrótta- og tómstunda.

Borgarráð samþykkti ráðningarnar á fundi sínum í morgun. Reykjavíkurborg auglýsti lausar stöður tveggja sviðsstjóra í ágúst síðastliðnum og bárust 18 umsóknir um stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs, og 56 umsóknir um stöðu sviðsstjóra menningar, íþrótta- og tómstundasviðs. Níu drógu umsóknir til baka. Hæfnisnefndir sem skipaðar voru um hvora stöðu skiluðu af sér tillögur um ráðningar sem lagðar voru fyrir borgarráð.

Rannveig Einarsdóttir nýr sviðsstjóri velferðarsviðs

Borgarráð hefur samþykkt ráðningu Rannveigar Einarsdóttur, sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs Hafnarfjarðarbæjar, í stöðu sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar.

Það var samdóma álit hæfnisnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Rannveig Einarsdóttir uppfyllti best umsækjenda þær kröfur sem gerðar eru til starfs sviðsstjóra og fram komu í auglýsingu um starfið. 

Rannveig Einarsdóttir er með B.A. gráðu í félagsfræði og nám til starfsréttinda í félagsráðgjöf og meistaragráðu, MPA í opinberri stjórnsýslu, hvoru tveggja frá Háskóla Íslands. Hún starfaði á árunum 1986-1989 sem félagsmálastjóri hjá Ísafjarðarkaupstað og félagsráðgjafi hjá Hafnarfjarðarbæ og Grindarvíkurbæ. Þá gegndi hún stöðu yfirfélagsráðgjafa fjölskyldu- og félagsþjónustu Keflavíkur og Reykjanesbæjar í 22 ár og var á þeim tíma einnig staðgengill félagsmálastjóra og framkvæmdastjóri barnaverndar Reykjanesbæjar. Undanfarin 11 ár hefur Rannveig gegnt stöðu sviðsstjóra fjölskyldu- og barnamálasviðs og leiðtoga velferðarþjónustu Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Velferðarsvið ber ábyrgð á velferðarþjónustu Reykjavíkurborgar þ.m.t. almennri félagsþjónustu og sértækri þjónustu við fatlað fólk, aldraða og börn og fjölskyldur þeirra. Velferðarsvið starfar með velferðarráði og barnaverndarnefnd. Hlutverk sviðsstjóra velferðarsviðs Reykjavíkurborgar er dagleg yfirstjórn á auk þess sem hann ber ábyrgð á rekstri, þjónustu og stjórnsýslu sviðsins.

Ein af megináherslum sviðsins næstu fimm árin er innleiðing nýrrar velferðarstefnu Reykjavíkurborgar en einkunnarorð hennar eru Reykjavík – fyrir okkur öll. Stafræn umbreyting á þjónustu, innleiðing laga um farsæld barna og aukið samráð við hagsmunaaðila eru á meðal fjölmargra verkefna í aðgerðaráætlun velferðarstefnunnar. Á sviðinu starfa 3000 manns sem veita þjónustu á yfir 100 starfseiningum.

Eiríkur Björn Björgvinsson nýr sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs

Borgarráð samþykkti á fundi sínum í morgun ráðningu Eiríks Björns Björgvinssonar, sviðsstjóra fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar, í stöðu sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs.

Það var samdóma álit hæfnisnefndar sem fór yfir umsóknir og tók viðtöl við umsækjendur að Eiríkur Björn Björgvinsson uppfyllti best umsækjenda þær kröfur sem gerðar eru til starfs sviðsstjóra og fram komu í auglýsingu um starfið. 

Eiríkur Björn Björnsson er með B.Ed. íþróttakennarapróf sem framhalds- og grunnskólakennari frá Íþróttakennaraskóla Íslands á Laugavatni. Hann er með diplóma í stjórnun frá Kennaraháskóla Íslands, diplóma í opinberri stjórnsýslu frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið öllum áföngum til meistaragráðu í opinberri stjórnsýslu við Háskóla Íslands. Eiríkur starfaði sem æskulýðs- og íþróttafulltrúi Egilstaðabæjar í tvö ár og deildarstjóri íþrótta- og tómstundadeildar Akureyrarbæjar í sex ár. Hann var bæjarstjóri Austur-Héraðs í tvö ár sem sameinaðist Fljótsdalshéraði og gegndi hann stöðu bæjarstjóra þar í sex ár. Þá tók hann við stöðu bæjarstjóra Akureyrarbæjar, sem hann gegndi í átta ár. Undanfarin þrjú ár hefur hann starfað sem sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs Garðabæjar.

Menningar-, íþrótta- og tómstundasvið er nýtt sameiginlegt svið innan stjórnkerfis Reykjavíkurborgar sem er í undirbúningi en borgarráð hefur samþykkt að sameina menningar- og ferðamálasvið og íþrótta- og tómstundasvið í eitt svið. Fyrirhugað er að nýtt sameiginlegt svið beri ábyrgð á skipulagi, rekstri og þjónustu menningarstofnana, íþróttamannvirkja, hátíða og margvíslegum stuðningi og samstarfi við menningar-, íþrótta- og tómstundalífið.

Á nýju sameinuðu sviði verða starfsmenn tæplega 850 talsins.

Hlutverk sviðsstjóra menningar-, íþrótta- og tómstundasviðs Reykjavíkurborgar er dagleg yfirstjórn á auk þess sem hann ber ábyrgð á rekstri, þjónustu og stjórnsýslu sviðsins.

Á sama tíma og Rannveigu og Eiríki Birni er óskað farsældar í starfi er öðrum umsækjendum þakkaður sýndur áhugi og óskað velfarnaðar.