Trafo Tortilla Chips Chili innkallað

Heilbrigðiseftirlit Innkallanir matvæla

Innköllun á glútenlausri vöru „Trafo Tortilla Chips Chili“ vegna þess að hún inniheldur glúten.

 

 

Icepharma  hefur, í samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, ákveðið að innkalla af markaði vöru vegna þess að hún er merkt glútenlaus en inniheldur glúten.

Eftirfarandi upplýsingar auðkenna vöruna sem innköllunin einskorðast við:

Vörumerki: Trafo.

Vöruheiti: Tortilla Chips Chili.

Strikanúmer: 8712423019348.

Nettómagn: 200 g

Lotunúmer: 372150331 og 373330331.

Best fyrir: 3.4.2018 og 29.7.2018

Framleiðandi: FZ Organic.

Framleiðsluland: Holland.

Innflytjandi: Icepharma, Lynghálsi 13, 110 Reykjavík.

Dreifing: Melabúðin, Fjarðarkaup (Fræið), verslanir Nettó um land allt, verslanir Kjörbúðarinnar á Siglufirði og á Dalvík.

Fullyrt er á umbúðum vörunnar að hún sé glútenlaus (e. gluten free) en til að mega nota þessa fullyrðingu við markaðssetningu á matvælum mega þau ekki innihalda meira en 20 mg/kg af glúteni. Við innra eftirlit framleiðanda hefur komið í ljós að varan inniheldur meira en 20 mg/kg af glúteni og er hún því ekki örugg fyrir einstaklinga sem eru með ofnæmi- eða óþol fyrir korni sem inniheldur glúten.

Tekið skal fram að varan er skaðlaus fyrir þá sem ekki eru viðkvæmir fyrir glúteni.  Þeir neytendur sem eiga umrædda vöru og eru viðkvæmir fyrir glúteni eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga eða skila henni til þeirrar verslunar þar sem hún var keypt eða til Icepharma, Lynghálsi 13, milli 8-16 alla virka daga.  Nánari upplýsingar fást hjá Icepharma í síma 540 8000.