Verðlaunin voru veitt við hátíðlega athöfn í Ráðhúsinu í dag.
Nær fjörutíu tilnefningar bárust til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs sem veitt eru árlega fyrir gróskumikið skóla- og frístundastarf í Reykjavík.
Tólf verkefni í leikskólum, grunnskólum og frístundamiðstöðvum fengu hvatningarverðlaunin sem veitt voru við hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhússins.
Hvatningarverðlaun fyrir leikskólastarf fengu;
• Dalskóli fyrir verkefnið Tökum flugið,
• Laufásborg fyrir verkefnið Skák í leikskólanum,
• Sæborg fyrir verkefnið Listsköpun í Sæborg.
Hvatningarverðlaun fyrir grunnskólastarf fengu;
• Grandaskóli fyrir verkefnið Lestarátak í samstarfi við Forlagið,
• Hólabrekkuskóli fyrir verkefnið Vinaliðar í Hólabrekkuskóla,
• Laugarnesskóli fyrir verkefnið Umhverfið mitt. Í samstarfi við Listaháskóla Íslands og Grasagarðinn í Laugardal.
Hvatningarverðlaun fyrir frístundastarf fengu;
• Frístundaheimilið Eldflaugin fyrir verkefnið Ævintýraspilið,
• Félagsmiðstöðin 105 fyrir verkefnið Femínistafélag 105,
• Frístundaheimilið Gulahlíð fyrir verkefnið Tómstundaklúbbur.
Þá voru veitt hvatningarverðlaun fyrir þverfagleg samstarfsverkefni leikskóla, grunnskóla, frístundarstarfs og félagsmiðstöðva;
• Árbæjarskóli og félagsmiðstöðin Tían fyrir verkefið Hönd í hönd,
• Gullborg, Grandaskóli og Undraland fyrir verkefnið Opinskátt gegn ofbeldi,
• Þróttheimar og Langholtsskóli fyrir verkefnið Lýðræðisleg vinnubrögð í nemendaráði Þróttheima og Langholtsskóla.
Markmið hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs er að veita starfsfólki skóla og frístundasviðs hvatningu og stuðla að nýbreytni- og þróunarstarfi með börnum og ungmennum.
Meira um hvatningarverðlaunin.