Tilnefndu til hvatningarverðlauna grunnskóla

Skóli og frístund

""

Auglýst er eftir tilnefningum til hvatningarverðlauna skóla- og frístundaráðs 2019 vegna framsækins grunnskólastarfs og samstarfsverkefna í Reykjavík.

Viltu vekja athygli á gróskumiklu grunnskólastarfi á vegum Reykjavíkurborgar? Veistu af metnaðarfullu þróunarverkefni, skemmtilegum tilraunum, áhugaverðu samstarfi grunnskóla við leikskóla og/eða frístundastarf eða annarri nýbreytni í starfi grunnskóla borgarinnar? Viltu veita starfsfólki í grunnskólum Reykjavíkur viðurkenningu og hvatningu?

Allir geta tilnefnt til verðlaunanna; foreldrar, ömmur og afar, starfsfólk SFS, aðrir borgarstarfsmenn, grunnskólar, leikskólar, frístundamiðstöðvar, aðrar stofnanir og samtök. Við val á verðlaunahöfum verður haft til hliðsjónar að verkefnið sé öðrum til eftirbreytni og hvatning til góðra verka, svo og að fjölbreytt verkefni fái viðurkenningu. Þrjú verkefni sem skara fram úr verða verðlaunuð og fær starfsstaður viðurkenningarskjal og verðlaunagrip til eignar.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 13. febrúar og skal senda þær á netfangið sfs@reykjavik.is.

Sjá eyðublað fyrir tilnefningu.

Auglýsing um tilnefningar til hvatningarverðlauna grunnskóla.

Hvatningarverðlaun skóla- og frístundaráðs fyrir framsækið grunnskólastarf verða afhent á
Öskudagsráðstefnu sem haldin verður 6. mars 2019.