Tilnefndu til aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar

Mannréttindi

""

Mannréttindaskrifstofa  óskar eftir tilnefningum til aðgengisviðurkenningar Reykjavíkurborgar 2018.

Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök, fyrirtæki eða stofnanir sem hafa á eftirtektarverðan hátt staðið vörð um gott aðgengi fatlaðs fólks í Reykjavík.  Hægt er að nefna ákveðin verkefni í þágu aðgengis, starfsemi sem stuðlar að bættu aðgengi, sem og hagsmunabaráttu í þágu aðgengismála. 

Aðgengisviðurkenning borgarinnar var veitt í fyrsta sinn í fyrra en þá hlaut Blindrafélagið viðurkenninguna fyrir fjölbreytt starf í þágu bætts aðgengis fyrir blinda og sjónskerta.

Tilnefningar til aðgengisviðurkenningarinnar ásamt rökstuðningi sendist rafrænt á netfangið mannrettindi@reykjavik.is

Frestur til að skila tilnefningum er til 5. mars næstkomandi.

Aðgengisviðurkenningin verða afhent af borgarstjóra Reykjavíkur 12. mars nk.  á Grand hótel á málþinginu Stóra bílastæðamálið.  Það er Öryrkjabandalag Íslands, ÖBÍ,  sem stendur fyrir  málþinginu. Þar verður fjallað um hvaða reglur gilda um bílastæði og stæðiskort fyrir hreyfihamlaða, sem og fyrirhugaðar breytingar þar á. Einnig verða kynntar áherslur ÖBÍ um ný umferðarmerki fyrir hreyfihamlað fólk og um aðgengi að hleðslustöðvum fyrir rafbíla.

Málþingið er haldið í tengslum við alþjóðlegan dag aðgengis fyrir alla sem er 11. mars. Markmiðið með deginum er að vekja athygli á því sem vel er gert í aðgengismálum í og stuðlar að því að fólk hafi jafnt aðgengi að samfélaginu óháð fjölbreyttum aðgengisþörfum.