Tillaga að starfsleyfi fyrir Efnarás ehf. í Gufunesi

Heilbrigðiseftirlit

""

Umhverfisstofnun hefur unnið tillögu að nýju starfsleyfi fyrir Efnarás ehf. til reksturs spilliefnamóttöku í Gufunesi, 112 Reykjavík. Efnarás ehf. rak áður spilliefnamóttöku að Klettagörðum 9 en nýtt húsnæði Efnarásar hýsti áður Efnamóttökuna og var hannað sérstaklega til móttöku og meðhöndlun spilliefna.

Eins og fram kom í umsögn Umhverfisstofnunar um meðfylgjandi matskyldufyrirspurn fyrir framkvæmdina mun frá fyrirtækinu helst stafa mengunarhætta ef leki kemur að umbúðum eða ílátum er innihaldi spilliefni. Því er lögð áhersla áherslu á að notast verði við traustar, lekaheldar umbúðir fyrir geymslu spilliefna, einnig þeirra efna sem geymd verða í gámum á svæðinu. Auk þess undirstrikaði stofnunin að öll meðhöndlun spilliefna þurfi að fara fram þar sem frárennsli er í söfnunarþró. Að öðru leyti sagði í umsögninni að framkvæmdin sé ekki líkleg til að hafa í för með sér veruleg umhverfisáhrif og sé því ekki háð mati á umhverfisáhrifum. Í starfsleyfistillögunni eru ákvæði sem tryggja að ofangreint sé í lagi.

Starfsleyfistillagan ásamt umsóknargögnum frá rekstraraðila og niðurstaða matskyldufyrirspurnar verður aðgengileg á vefsíðum Umhverfisstofnunar og Reykjavíkurborgar á tímabilinu 20. september til 22. október 2018. Athugasemdir við tillöguna skulu vera skriflegar og sendar til Umhverfisstofnunar. Frestur til að skila inn athugasemdum er til 22. október 2018.

Skipulagsstofnun - Flutningur á starfsemi Efnarásar ehf. á athafnasvæði í Gufunesi, Reykjavík

Umhverfisstofnun - Tillaga að starfsleyfi

Fylgiskjal með umsókn um starfsleyfi fyrir Efnarás ehf.