Tilkynning frá umboðsmanni borgarbúa

Umboðsmaður borgarbúa, Ingi B. Poulsen, hóf störf í dag eins og komið hefur fram í fjölmiðlum undanfarið. Nú þegar hafa honum borist erindi og viðtalsbeiðnir.  Sökum þessa vill skrifstofa borgarstjórnar árétta að umboðsmaður mun ekki taka erindi til meðferðar fyrr en skrifstofa hans opnar formlega þann 1. maí næstkomandi. Næstu tvo mánuði mun umboðsmaður nýta í nauðsynlegan undirbúning og skipulagningu starfsins.
 
Skrifstofa borgarstjórnar beinir því þeim tilmælum til þeirra aðila sem taka á móti beiðnum borgarbúa um viðtal við umboðsmann borgarbúa að upplýsa þá um framangreint og hvetja þá til að hafa samband á ný eftir 1. maí næstkomandi.