Tilboðsfrestur vegna lóða í Úlfarsárdal rennur út í dag

Stjórnsýsla Mannlíf

""

Frestur til að skila tilboðum í lóðir í Úlfarsárdal rennur út kl. 12.00 í dag. Tekið er við tilboðum í móttöku Ráðhúss Reykjavíkur við Tjarnargötu.

Tilboð verða opnuð í heyranda hjóði í Tjarnarsal Ráðhússins síðar í dag á eftirfarandi tímum:

  • Tilboð í fjölbýlishús verða opnuð frá kl. 14.00
  • Tilboð í raðhús verða opnuð frá kl. 14.15
  • Tilboð í tvíbýlishús verða opnuð frá kl. 14.30
  • Tilboð í parhús verða opnuð klukkan frá kl. 14.45
  • Tilboð í einbýlishús verða opnuð frá kl. 15.00

Hæstbjóðandi, eða umbjóðandi hans, verður að vera á staðnum til að  staðfesta tilboð og ganga frá tilboðstryggingu.

Nánari upplýsingar um sölu byggingarréttar í Úlfarsárdal er að finna á lóðavef Reykjavíkurborgar. Úlfarsárdalur – lóðasala 2019