Tilboðsfrestur rennur út á föstudag

Atvinnumál Framkvæmdir

""

Frestur til að skila inn tilboðum í byggingarrétt á lóðum í Úlfarsárdal rennur út kl. 12 á föstudag 4. maí. Tekið er við tilboðum í Ráðhúsi Reykjavíkur við Tjarnargötu. Útboðsgögn og tilboðsblöð eru á vef Reykjavíkurborgar – reykjavik.is/lodir

Í þessu opna útboði er boðinn út byggingarréttur fyrir 255 íbúðir á lóðum bæði í grónari hluta hverfisins sem og á nýju svæði sem skipulagt hefur verið við Leirtjörn. Íbúðirnar skiptast á nokkrar húsgerðir og er breytilegt eftir húsgerð hvort einstaklingar og/eða lögaðilar geta boðið í þær. Skiptingin er eftirfarandi:

  • Fjölbýli, 151 íbúð - lögaðilar
  • Raðhús, 48 íbúðir – einstaklingar og lögaðilar á nokkrum lóðum
  • Parhús, 4 íbúðir - einstaklingar
  • Einbýlishús, 32 einbýli - einstaklingar
  • Tvíbýlishús/einbýlishús, 20 íbúðir - einstaklingar

 

Sett hafa verið upp skilti í Úlfarsárdal til að auðvelda fólki að skoða þær lóðir sem í boði eru og hafa margir lagt leið sína í dalinn, auk þess sem margir hafa spurst fyrir á skrifstofu eigna og atvinnuþróunar sem fer með lóðasölu.

Lokafrestur til að skila tilboðum rennur eins og áður segir út á hádegi föstudaginn 4. maí. Á útboðssíðu á reykjavik.is/lodir eru lausar lóðir sýndar á korti, tilboðsblöð og önnur útboðsgögn. 

 

Mikil uppbygging í Úlfarsárdal

Auk lóða í almennu útboði hefur byggingarrétti fyrir 148 íbúðir verið ráðstafað.  Búseti og Bjarg íbúðafélag sem rekin eru án hagnaðarmarkmiða fá lóðir við Leirtjörn og einnig hefur verið tekin frá lóð fyrir verkefni Reykjavíkurborgar um hagkvæmt húsnæði fyrir fyrstu kaupendur. Á þessum lóðum verða um 148 íbúðir.  Alls eru því rúmlega 400 íbúðir að fara í uppbyggingu í Úlfarsárdal sem verður 1.300 íbúða hverfi þegar allt er uppbyggt. Aðrar lóðir eru nú þegar seldar.  

 

Úlfarsárdalur býður gott aðgengi að fjölbreyttum útivistar- og náttúrusvæðum með einstöku samspili fjallsins, dalsins og árinnar. Gróður á útivistarsvæði við Leirtjörn mun taka mið af aðstæðum en við bakka tjarnarinnar verður leitast við að endurheimta náttúrlegt gróðurlendi með áherslu á gróðursetningu íslenskra tegunda, til dæmis víðikjarr og engjagras. Vatni verður veitt í tjörnina með blágrænum ofanvatnslausnum. Við Leirtjörn verður útivistarstígur sem tengist stígakerfi Úlfarsfells.

 

Neðst í dalnum við Úlfarsá er glæsilegt mannvirki í byggingu sem hýsa mun skóla, leikskóla, menningarmiðstöð, bókasafn, sundlaug og íþróttamannvirki. Nú þegar hefur hluti byggingarinnar verið tekinn í notkun og næsti áfangi verður tekinn í notkun næsta haust. Uppbygging á íþróttasvæðisins er vel á veg komin og ný útisundlaug verður tekin í notkun árið 2021.