Þekkir þú Reykvíking ársins 2019?

Mannréttindi Mannlíf

""

Borgarstjórinn í Reykjavík óskar nú í níunda sinn eftir ábendingum frá borgarbúum um Reykvíking sem verið hefur öðrum til fyrirmyndar. Ábendingarnar verða notaðar til að velja Reykvíking ársins.

Til greina koma aðeins einstaklingar, sem hafa verið til fyrirmyndar eða sýnt af sér háttsemi eða atferli sem kemur Reykjavíkurborg til góða á einhvern hátt.

Slíkur borgari gæti t.d. verið einhver sem heldur borginni hreinni, eða einhver, sem hefur haft jákvæð áhrif á nærumhverfi sitt eða hefur gert Reykjavíkurborg gott á undanförnum árum með einhverjum öðrum hætti en án þess þó að fá greitt fyrir störf sín.

„Það eru svo ótal margir Reykvíkingar sem eru að vinna óeigingjarnt starf í þágu borgarinnar á degi hverjum og þessu fólki ber að þakka. Ég hvet alla þá sem vita af slíkum einstaklingum að senda inn tilnefningu um Reykvíking ársins 2019, “ Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.

Sú hefð hefur myndast á undanförnum árum að Reykvíkingur ársins rennir fyrstur fyrir lax í Elliðaánum ásamt borgarstjóra í boði Stangaveiðifélags Reykjavíkur sem hefur árnar á leigu. Bergþór Grétar Böðvarsson, var valinn Reykvíkingur ársins 2018, fyrir frumkvæði að stofnun og starfsemi knattspyrnufélagsins FC Sækó sem hann hefur varið ómældum tíma í jafnt innan sem og utan vallar. 

Ábendingar um einstaklinga eru vel þegnar og ber að senda þær inn ásamt rökstuðningi um það hvers vegna viðkomandi einstaklingur á heiðurinn skilinn á netfangið hugmynd@reykjavik.is eða bréflega til skrifstofu borgarstjóra merkt Reykvíkingur ársins fyrir fimmtudaginn 13. júní 2019.

Þriggja manna dómnefnd velur Reykvíking ársins úr innsendum tillögum.