Talið niður fyrir gangandi vegfarendur

Samgöngur Umhverfi

""

Niðurtalningarljós fyrir gangandi vegfarendur voru tengd í dag á gatnamótum Bankastrætis og Lækjargötu.

Breytingin frá hefðbundnum gangbrautarljósum er að nýtt ljósker er nú  fyrir ofan „rauða og græna kallinn“.  Þegar rauða ljósið logar er talið niður hvenær grænn kall kemur og þegar græni kallinn logar sýnir niðurtalningin sekúndur þar til sá rauði kemur á ný.

Bætt öryggi er meginástæðan fyrir uppsetningu ljósanna en niðurtalningarljósin hjálpa fólki að virða ljósin.  Forgangur Strætó eftir Lækjargötu hefur í för með sér  að lengd rauða gönguljóssins getur verið breytileg. Stýrikerfið nemur strætisvagna þegar þeir nálgast gatnamótin og gefur þeim svigrúm til að komast yfir gatnamótin og á meðan logar rautt á gangandi. Þegar örugg boð hafa borist  inn í kerfið um að strætisvagn sé á leið í gegn hefst niðurtalningin. Meðan ekki eru komin örugg boð logar rauða niðurtalningin og sýnir 1+ þar til öruggt er að fara í ferli til að skipa yfir í grænt.

Myndin fyrir neðan sýnir þrjár ólíkar stillingar. 

  • Til vinstri er rautt og beðið eftir niðurtalningartíma.
  • Fyrir miðju logar rauði kallinn og mun skipta eftir 7 sekúndur í grænt.
  • Til hægri mjá sjá að græni kallinn mun loga í 12 sekúndur enn.