Takk fyrir að hjóla í samgönguviku!

Hjólaborgin Samgöngur

Tvær hjólatyllur við gatnamót Laugavegs og Nóatúns.

Hjólatyllum hefur fjölgað í borginni og einnig er búið að merkja þær slagorðum. Þessir standar hafa almennt þann tilgang að auka við þægindi hjólreiðafólks þegar það stoppar á rauðu ljósi við gatnamót. Tilgangurinn er að bæta þjónusta fyrir sístækkandi hóp hjólreiðafólks í borginni. Þægilegt er að geta tyllt niður fæti á svona hjólatyllur við gatnamót þannig að það þurfi ekki að stíga niður af hjólinu þegar stoppað er.

Nú í samgönguviku hafa límmiðar verið festir á standana með nokkrum slagorðum eins og: 

  • Takk fyrir að hjóla
  • Tylltu þér hjá mér!
  • Hallaðu þér að okkur
  • Stöndum saman
  • Stutt stopp fyrir næsta sprett
  • Þú stendur þig vel
  • Takk fyrir að hugsa um umhverfið.

Hjólatyllurnar eru íslensk framleiðsla og hönnun frá KRUMMA EHF.

Samgönguvika 2022

Nýr hjólastígur opnaður - og myndir á facebook

Samgönguvika á facebook

Næst: 22. september – Bíllausi dagurinn Höfuðborgarsvæðið - Strætó bs. og sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu bjóða frítt í strætó þennan dag. Fólk er hvatt til að skilja bílinn eftir heima og nýta sér vistvæna samgöngumáta.