Sýningaropnun – Innrás I: Guðmundur Thoroddsen

Mannlíf Menning og listir

""

Fyrsti hluti sýningaraðarinnar Innrás í Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni opnar á Safnanótt, föstudag 2. febrúar kl. 17.00.

Fyrsti hluti sýningaraðarinnar Innrás í Listasafni Reykjavíkur – Ásmundarsafni opnar á Safnanótt, föstudag 2. febrúar kl. 17.00.

Árið 2018 eru fyrirhugaðar fjórar innrásir inn í sýninguna List fyrir fólkið í Ásmundarsafni, þar sem verk myndhöggvarans eru skoðuð út frá ólíkum tímabilum á ferli hans. Völdum verkum hans er skipt út fyrir verk starfandi listamanna.

Fyrsti listamaðurinn í röðinni er Guðmundur Thoroddsen. Guðmundur hefur undanfarin ár beint sjónum sínum á kómískan hátt að karlmennskunni og notað til þess meðal annars skúlptúra úr keramík og viði. Gróf form og efnisnotkun Guðmundar býður upp á áhugavert samtal við verk Ásmundar.

Þremur öðrum listamönnum hefur verið boðið að setja upp verk sín á sýningunni í einkasamtali við verk Ásmundar. Það eru Hrafnhildur Arnardóttir / Shoplifter, Margrét Helga Sesseljudóttir og Matthías Rúnar Sigurðsson. Öll vinna þau skúlptúra í ólík efni og veita verk þeirra áhugaverða sýn á þróun þrívíðrar myndlistar, efnisval og viðfangsefni.