Sýningaropnun − D35 Leifur Ýmir Eyjólfsson: Handrit

Mannlíf Menning og listir

""

Sýning á verkum Leifs Ýmis Eyjólfssonar, Handrit, verður opnuð í D-sal Hafnarhússins, fimmtudag 29. nóvember kl. 17.00.  Leifur Ýmir er 35. listamaðurinn sem sýnir í sýningaröðinni í D-sal, þar sem listamönnum er boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.

Sýningin Handrit byggist á safni orða, texta og setningabrota sem listamaðurinn hefur haldið til haga og byggt upp síðustu ár. Hann hefur sérstakt dálæti á því sem kemur dags daglega fyrir í samskiptum milli fólks eða því sem maður hugsar með sjálfum sér án þess að því fylgi sérstök merking. Þetta er tungutak millibilsástands, íhugunar eða hrein uppfylling í þagnir. Leifur Ýmir setur fram handrit sitt handskrifað og innbrennt í fjölmargar leirplötur sem stillt er upp um alla sýningarveggi.

Leifur Ýmir nam við Myndlistaskólann í Reykjavík, Keramík og mótun auk fornáms, 2008-2009. Hann útskrifaðist frá Myndlistardeild Listaháskóla Íslands árið 2013.

Sýningarstjóri er Markús Þór Andrésson, deildarstjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur.

Sýningaröðin í D-sal hóf göngu sína árið 2007. Hér er efnilegum listamönnum, sem hafa mótandi áhrif á íslenska myndlistarsenu, boðið að halda sína fyrstu einkasýningu í opinberu safni.