Sýningaopnun: Undir sama himni og Skúlptúr og nánd

Mannlíf Menning og listir

""

Laugardaginn 19. janúar kl. 16.00 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í Ásmundarsafni við Sigtún. Ný yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar, Undir sama himni, og sýningin Skúlptúr og nánd með verkum myndlistarmannsins Sigurðar Guðmundssonar. 

Laugardaginn 19. janúar kl. 16.00 verða opnaðar tvær nýjar sýningar í Ásmundarsafni við Sigtún. Ný yfirlitssýning á verkum Ásmundar Sveinssonar, Undir sama himni, og sýningin Skúlptúr og nánd með verkum myndlistarmannsins Sigurðar Guðmundssonar. 

Pawel Bartoszek formaður menningar-, íþrótta og tómstundaráðs Reykjavíkur opnar sýningarnar.

Á báðum sýningum er sjónum sérstaklega beint að verkum listamanna sem prýða almenningsrými og nálgun þeirra við list sem hluta af daglegu umhverfi manna. Ásmundur er höfundur höggmynda sem prýða meira en 20 áberandi staði í borgarlandinu og víða á landsbyggðinni. Á síðustu árum hafa mörg glæsileg verk eftir Sigurðar verið sett upp víða um land og er þar skemmst að minnast Fjöruverks við Sæbraut, listaverkum í og við Barnaspítala Hringsins og skúlptúra við höfuðstöðvar Alvogen á Íslandi.

Á báðum sýningum verða minni frummyndir verka, skissur og teikningar auk listaverka sem eru einkennandi fyrir list Ásmundar og Sigurðar og hafa hugmyndaleg eða formræn tengsl við verk þeirra í almenningsrými.

Árið 2019 er ár listar í almenningsrými hjá Listasafni Reykjavíkur og eru sýningarnar sem opnaðar verða á laugardag liður í því markmiði safnsins að beina sjónum manna að þeim listaverkum sem við njótum sem hluta af daglegu lífi. Yfirlitssýningin á verkum Ásmundar Undir sama himni stendur út árið 2019. Sýningunni Skúlptúr og nánd lýkur 31. mars en hún er fyrst í röð einkasýninga fimm listamanna sem eru höfundar listaverka í borginni.

Sýningarstjórar sýninganna eru Sigurður Trausti Traustason, deildarstjóri safneignar og rannsókna og Yean Fee Quay, verkefnisstjóri sýninga hjá Listasafni Reykjavíkur.